dánaraðstoð.
Herra forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir úthaldið. Persónulega finnst mér þetta mál flókið. Ég skil, held ég, hvaðan hv. þingmaður er að koma í þessu máli. Ef ég mætti velja eitthvert eitt orð til að lýsa því þá væri það líklega mannleg reisn. En að sama skapi erum við með eitthvað sem heitir líknandi meðferð og ég velti fyrir mér hvort þingmaðurinn hafi upplýsingar um það hversu margar, ég veit ekki hvaða orð við eigum að velja, sjúkdómsgreiningar eru um það þegar aðstæður fólks á þessum lokametrum lífsins eru með þeim hætti að líknandi meðferð dugar ekki til að kvalastilla einstaklinginn sem er að fara að kveðja. Annað sem mér þykir svolítið flókið, en augljóslega virðast þessi ríki sem hv. þingmaður taldi upp hafa leyst það, er læknaeiðurinn. Hann skýrir væntanlega afstöðu lækna í gegnum tíðina þó að hún hafi tekið einhverjum mælanlegum breytingum seinni árin. Ég velti þessu tvennu kannski fyrst og fremst fyrir mér. Svo er hitt að dánaraðstoð er kannski líka ferli sem getur verið í eðli sínu flókið. Ekki að ég ætli að bera þetta saman við þau ríki sem hafa í gegnum tíðina framfylgt dauðarefsingum en þar hafa slíkar athafnir t.d. bara farið úrskeiðis. Ég þekki ekki muninn á þessu, hvernig þetta er framkvæmt þannig að ég þigg að sjálfsögðu svör við þessum spurningum en einnig kannski fræðslu um þetta síðasta sem ég nefndi.