157. löggjafarþing — 35. fundur,  19. nóv. 2025.

dánaraðstoð.

23. mál
[18:37]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir svarið. Ég velti líka fyrir mér í þessu samhengi — ég átta mig á því að yfirgnæfandi meiri hluti þeirra sem falla undir þetta eru einstaklingar með langt gengið krabbamein. Mér dettur helst í hug, til að taka eitthvert dæmi, að það reynist til að mynda erfitt að kvalastilla beinkrabba, svo eitthvað sé nefnt í þessu, en það breytir einhvern veginn ekki því sem mér fannst kannski hv. þingmaður ekki taka alveg með úr fyrri ferð minni, sem var með hvaða hætti þessum þjóðum, sem hv. þingmaður taldi upp í erindi sínu, tókst að leysa það sem varðar læknaeiðinn.