dánaraðstoð.
Herra forseti. Ég þarf bara að koma mér aftur í form og gera langhlaupið að áframhaldandi atvinnugrein. En ég er sammála hv. þingmanni, þetta snýst ekkert um flokkslínur sem slíkar. En það er áhugavert að hv. þingmaður nefni þetta, það séu einhverjar áhyggjur af því að þetta taki mögulega of mikinn kraft úr ráðuneytinu eða heilbrigðiskerfinu vegna þess að það sé svo margt annað sem þurfi að huga að. Ég hef heyrt þessi sjónarmið líka og ég minnist þess, ég held að það hafi verið svar við einni af fyrstu fyrirspurnunum mínum, að þá hafi svarið verið eitthvað á þá leið frá ráðuneytinu: Nei, við höfum engan tíma til að sinna þessu því það er svo margt annað. Ég kannski spyr: Ef þau rök fengju að ráða, telur hv. þingmaður að heilbrigðiskerfið okkar væri einhvern tímann með þeim hætti að það væri ekki hægt að færa þessi nákvæmlega sömu rök? Eins og ég held að við flest vitum þá lengist líf fólks, það þýðir að fleiri fá krabbamein. Við erum að glíma við alls konar lífsstílssjúkdóma. Það er og hefur alltaf verið mikið álag á heilbrigðiskerfið og, virðulegur forseti, sú sem hér stendur sér ekki fram á að það sé eitthvað að minnka. Þannig að ég spyr hv. þingmann hvort hún sé sammála mér í því.
Einnig vil ég beina því til hv. þingmanns og velta því aðeins upp í umræðunni að það virðist vera, ég veit ekki hvort ég á að nota orðið hræðsla, eða alla vega þessar áhyggjur meðal þeirra sem sinna sérstaklega líknandi meðferð og eru áfjáðir um að við bætum líknandi meðferð og lífslokameðferð, svo ég sé örugglega nota rétt orð. Ég er bara sammála því. Ég held að það sé mjög mikilvægt að bæta þá meðferð. En ég spyr líka: Er hv. þingmaður sammála mér í því að þetta sé kannski tvennt ólíkt og við getum gert bæði? Við getum bæði haldið áfram að reyna að efla heilbrigðiskerfið og unnið að löggjöf um dánaraðstoð? Og við getum bætt lífslokameðferð þótt við séum á sama tíma að velta fyrir okkur lögleiðingu dánaraðstoðar?