vernd barna og ungmenna á stafrænum vettvangi.
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir þingsályktunartillögu minni um vernd barna og ungmenna á stafrænum vettvangi. Flutningsmenn tillögunnar eru, ásamt þeim sem hér stendur, hv. þingmenn Sigurður Ingi Jóhannsson, Halla Hrund Logadóttir, Þórarinn Ingi Pétursson og Stefán Vagn Stefánsson.
Virðulegur forseti. Hér er lagt til að fela mennta- og barnamálaráðherra, í samvinnu við dómsmálaráðherra, innviðaráðherra og Persónuvernd, að undirbúa tvíþætt lagafrumvarp sem miði að því annars vegar að hækka lágmarksaldur á samfélagsmiðlum úr 13 árum í 15 eða 16 ár, að vinna við lagafrumvarpið miði að því. Hins vegar að herða reglur um markaðssetningu og auglýsingar sem beint er að börnum á samfélagsmiðlum og öðrum stafrænum vettvangi, með sérstakri áherslu á að koma í veg fyrir markvissa markaðssetningu sem byggir á persónuupplýsingum barna.
Markmið tillögunnar er að tryggja vernd barna og ungmenna gegn skaðlegu efni, áreitni og markaðssetningu á vörum og þjónustu sem er ekki ætluð börnum. Við erum að gæta að þessari vernd á öðrum vettvangi en samfélagsmiðlum hefur hingað til verið gefið svo til frítt spil.
Virðulegur forseti. Lágmarksaldur á samfélagsmiðlum verður að skoða í samhengi við aðgengi barna að skaðlegu efni sem þau bæði geta nálgast þar en er einnig beint að þeim. En við þurfum að skoða það líka í samhengi við markaðssetningu á vörum og þjónustu. Í þessu samhengi þurfum við að horfa til þess sem er að gerast í löndunum í kringum okkur og læra af þeirri vinnu. Núna sjáum við umræður í Danmörku og Noregi þar sem lagt er til að hækka lágmarksaldurinn upp í 15 ár. Í Ástralíu er það 16 ár. Það er eitthvað sem við getum lært af og horft til. Þar hefur vinna verið í gangi við t.d. aldursstaðfestingarforrit og við getum byggt á þeirri vinnu. Hér þarf einnig að horfa á alþjóðlegar skuldbindingar Íslands um vernd barna og áhrif samfélagsmiðla og markvissrar markaðssetningar þar inni. En við þurfum að horfa einnig til hlutverks foreldra og skóla við fræðslu og miðlalæsi og félagslegt netöryggi þar sem myndlæsi og gervigreindarlæsi fær forgang til að styrkja varnir barna á netinu. Að lokum þurfum við að horfa einnig til samræmingar við reglur Evrópusambandsins og við íslensk lög um vernd barna en við erum með mörg ákvæði þar.
Samkvæmt barnasáttmálanum sem gildir sem lög á Íslandi er einstaklingur barn til 18 ára aldurs og börn eiga rétt á að vera vernduð gegn skaðlegu efni. Aldurstakmark í dag á vinsælum samfélagsmiðlum eins og TikTok, Snapchat, Discord og YouTube er 13 ár sem sendir þau skilaboð að miðlarnir og efni sem þar er að finna sé viðeigandi þegar 13 ára aldri hefur verið náð. Sú er hins vegar ekki staðan. Fyrirtækin sem eiga og reka vörurnar sem samfélagsmiðlarnir eru, setja þennan lágmarksaldur til að vernda eigin hagsmuni og horfa til þess að brjóta ekki persónuverndarlög. Það er nauðsynlegt að horfa til persónuverndar og friðhelgi barna á netinu en það eitt og sér er ekki nóg til að setja viðeigandi merkingu. Það verður að horfa til aðgengis að skaðlegu efni og áreitni einnig.
Aldursviðmið eins og við sjáum þau vegna skaðsemi efnis er að finna í bíómyndum, þáttum og tölvuleikjum og á Íslandi byggjum við á hollenska Kijkwijzer-kerfinu. Þar erum við með aldursflokka allt upp í 18 ára þannig að þar skiljum við eftir, þegar horft er til samfélagsmiðla, aldurshópinn 14–18 ára, þar sem við erum ekki að meta efni samfélagsmiðla í takti við merkingar í bíómyndum og þáttum. Þar að auki erum við með sex efnisvísa sem hjálpa áhorfendum að taka ákvarðanir. Þessi þingsályktunartillaga miðar að því að við séum að aðstoða foreldra og veita þeim ákvörðunarréttinn til að meta efni og geta gefið í einhverjum tilfellum sérstakt leyfi fyrir notkun á miðlum frá 13 ára aldri.
Skaðlegt efni. Ef við horfum bara til Kijkwijzer-kerfisins og 14 ára aldurstakmarksins, hvað stendur þar? Þau hafa mikinn áhuga á hættulegri hegðun, sérstaklega jafnaldra, og telja hana eðlilega. Hvað varðar kvikmyndir sem sett er 14 ára merking á þá er þar horft til áhrifa á hegðun, hættulega hegðun, andfélagslega hegðun sem er gegn gildum samfélagsins, kvikmyndir og þætti sem sýna kynlíf samhliða neyslu áfengis eða fíkniefna án þess að gera það ljóst að slíkt samband geti verið hættulegt. Við sjáum mýmörg dæmi í rannsóknum og tölfræði um hvers konar efni þau eru að sjá; efni um sjálfsskaða, leiðir til að grenna sig, hatursskilaboð, ógnvekjandi myndir og myndbönd þar sem verið er að skaða manneskjur eða dýr. Börn eru einnig að sjá auglýsingar um klámefni inni á samfélagsmiðlum.
Ofan á þetta allt saman, sem er ekki inni í efni í kvikmyndum og þáttum, sjáum við áreitni, kynferðislega áreitni og tölfræðin þar er sannarlega ekki falleg. Samkvæmt rannsókn Menntavísindastofnunar fyrir Fjölmiðlanefnd hafa 24% stúlkna 14–16 ára og 16% drengja fengið senda nektarmynd. 29% stúlkna 14–16 ára og 12% drengja sögðust í sömu rannsókn hafa verið beðin um að senda af sér nektarmyndir. Hækkun lágmarksaldurs myndi skapa sterkari hindrun gegn ótímabærum aðgangi barna að slíku efni, veita þeim meiri tíma til að þroskast, taka út eðlilegan þroska og upplifa lífið og tilveruna á eigin forsendum áður en þau fara að takast á við þetta flókna stafræna umhverfi.
Auðvitað er rétt að gera greinarmun á neti og samfélagsmiðlum. Við notum netið til að afla okkur upplýsinga og eiga í samskiptum. Inni á samfélagsmiðlum er hins vegar ákveðinn eðlismunur því þar er efni ritstýrt með notkun algóritma. Ég þarf ekki að leita eftir efni, ég get farið inn á miðil í góðum tilgangi en síðan byrjar miðillinn að beina að mér efni. Ofan á það bætist síðan við markaðsefnið. Við erum með reglur í lögum um fjölmiðla og þá er verið að horfa á vernd barna gegn efni sem getur haft áhrif á líkamlegan, andlegan eða siðferðislegan þroska barna. Það er engin ástæða til þess að við ættum ekki að horfa til þess að vernda börn gegn þessu efni á samfélagsmiðlum þótt þeir hafi ekki aðsetur hér á Íslandi. Það er mikið ósamræmi í því að veita þetta eftirlit inni á íslenskum miðlum, í íslensku dagskrárefni, en gefa frítt spil þegar miðlarnir eru með höfuðstöðvar annars staðar en á Íslandi. Í lögum um mynddeiliveitur erum við með alls konar ákvæði, t.d. um að þær þurfi að setja á fót og starfrækja aldursstaðfestingarkerfi en þær þurfa að vera með aðsetur hér til að falla undir þessi lög og við höfum séð í okkar samtali við samfélagsmiðla að þeir hafa ekki alltaf verið tilbúnir til að fylgja lögum sem sett eru á Íslandi, sem er alvarlegt mál.
Við höfum séð dæmi í fréttum og sáum það bara í fréttum í gær að lögregla og barnaverndarþjónustan í Vestmannaeyjum biðla til foreldra að yfirfara samfélagsmiðla barna sinna því að þessir aðilar eru farnir að sjá þennan alþjóðlega hóp sem beinir athyglinni sérstaklega að yngri börnum á netinu, klófestir þau, byggir upp traust og fer síðan að hvetja til sjálfsskaða og ýta undir sendingar á myndefni eins og t.d. nektarmyndum. Við sáum dæmi líka og höfum séð í fréttum um unga íslenska stúlku sem í tæp þrjú ár sat föst í klóm þessa ofbeldishóps. Hún fór samt inn á miðlana í góðum tilgangi, hún ætlaði að fara inn á Discord til að læra að teikna, en eitt leiðir af öðru. Það eru ekki börnin okkar sem eru vandamálið, síður en svo. Í sakleysi sínu og af forvitni og áhuga leita þau inn á samfélagsmiðla, inn á miðla sem síðan líta á þau á móti sem söluvöru, leiða þau áfram með það að markmiði að halda athygli og athyglin er síðan nýtt til að selja og markaðssetja auglýsingar. Hluti af þeim eru auglýsingar um vörur og þjónustu sem er fyrst og fremst ætluð fullorðnu fólki en ekki börnum.
Þess vegna er þessi þingsályktunartillaga tvíþætt og við þurfum að horfa á þetta í stóru samhengi. Það eitt að hækka lágmarksaldurinn upp í 15 eða 16 ár er ekki nóg. Við þurfum auðvitað að horfa til fræðslu líka og síðan þurfum við að horfa á þetta umhverfi þar sem börn eru sannarlega að sjá auglýsingar sem eru ekki viðeigandi fyrir þeirra aldur. Í viðskiptaboðum og fjarkaupum er óleyfilegt að hvetja börn til að kaupa vörur eða þjónustu með því að notfæra sér reynsluleysi þeirra eða trúgirni. Síðan erum við að sjá tölfræði um að unglingsstúlkur eru mun líklegri til að sjá auglýsingar um megrunarvörur, andlitsmeðferðir og útlitsaðgerðir á meðan drengir eru mun líklegri til að sjá auglýsingar um fjárhættuspil. Þegar við skoðum það nánar þá sjáum við að meðal 9–12 ára barna hafa 27% drengja séð auglýsingar um veðmálastarfsemi og 35% í aldurshópnum 13–15 ára. Þau eru sannarlega að sjá auglýsingar sem eru ekki við hæfi.
Í lögum er vinnsla persónuupplýsinga barna í viðskiptalegum tilgangi beinlínis bönnuð, svo sem í tengslum við beina markaðssetningu, gerð og notkun persónusniðs og einstaklingsmiðaðar auglýsingar. Ákvæði þessi þurfa að vera virkari og skýrari í framkvæmd til að koma í veg fyrir að börn séu markvisst höfð að féþúfu út af stafrænu fótspori þeirra. Þannig að samhliða hækkun á lágmarksaldri þá skulum við horfa til þessarar markaðssetningar einnig. Með þessari samþættu nálgun er reynt að bregðast við fleiri en einni hættu á stafrænum vettvangi. Við höfum séð það í rannsóknum að við höfum náð árangri af því að hlutfall barna á samfélagsmiðlum eins og Snapchat og TikTok í aldurshópnum 9–12 ára hefur lækkað núna á tveggja ára tímabili af því að við erum að átta okkur á því að þau eiga ekki heima inni á miðlum undir 13 ára aldurstakmarkinu. Hins vegar þegar við skoðum aldurshópinn fyrir ofan 13 ára aldurinn — því eðlilega horfi ég þannig á það að þegar ég hef náð 13 ára aldri þá sé ég kominn með tilskilinn aldur — sjáum við hlutföllin hækka. Þar er lítill árangur og börnin okkar komin inn á marga mismunandi samfélagsmiðla á sama tíma.
Hættan er sú að á meðan við erum með ranga aldursmerkingu sem byggir á söfnun persónuupplýsinga en ekki vernd gegn skaðlegu efni, að bæði foreldrar og fólk sem vinnur með börn líti einnig á aldursmerkinguna í góðri trú, í takt við aðrar aldursmerkingar sem við höfum, treysti henni og gefi börnum leyfi til að fara inn á vettvang þar sem þau hafa ekki aldur til að meta eða átta sig á afleiðingum af því efni sem þau eru að horfa á.
Með þessari tillögu erum við að taka stöðu með foreldrum en ekki með fyrirtækjunum sem horfa á börnin sem söluvöru. Með þessu erum við að samræma reglur sem nú þegar gilda um vernd barna gegn skaðlegu efni. Með þessu erum við að sinna skyldum okkar um vernd barna gegn skaðlegu efni á samfélagsmiðlum og með þessu erum við líka að setja þrýsting á samfélagsmiðlafyrirtækin, sérstaklega ef við gerum það í samvinnu við önnur lönd sem eru að skoða aldurstakmörk, líkt og ég nefndi áðan, Noreg og Danmörku. Með þessum skilaboðum sem við erum að senda erum við að segja að við viðurkennum ekki þetta óviðunandi lágmarksaldurstakmark inni á samfélagsmiðlum. Við erum að horfa á hagsmuni barna okkar, við erum að leggja leikreglurnar út frá þeim lögum sem við höfum, þeim skyldum sem við berum gagnvart börnum. Að sjálfsögðu er fræðsla lykilatriði en málið er að þegar við erum með ranglega merkta vöru þá nær fræðslan takmörkuðum árangri. Þetta er það sem ég sé í mínu starfi daglega því fyrir utan þennan þingsal þá vinn ég einmitt með börnum alveg frá 1. bekk og upp úr, foreldrum þeirra og fagfólki sem vinnur með börnum. Dæmin sem við sjáum eru mýmörg. Við sjáum það að vel meinandi og ábyrgir foreldrar eiga það á hættu að missa tökin út af þessari röngu aldursmerkingu þannig að fræðsla verður að vera með. En boð og bönn eru víða í samfélaginu okkar þannig að samhliða fræðslu, hækkandi aldri, aukinni þekkingu og reynslu, fáum við aukið aðgengi. Það er eðlilegt að það sé einhver rammi á meðan við erum að ná ákveðinni grunnþekkingu og erum að tileinka okkur þá fræðslu sem er í boði og upplifa lífið og tilveruna á okkar forsendum.
Lokatakmarkið í þessu öllu saman er auðvitað að börn geti notað samfélagsmiðla á öruggan og skilvirkan hátt þannig að þetta þarf allt saman að tala saman. Við þurfum að bregðast við nýjum áskorunum sem koma t.d. með gervigreind eins og nefnt er hér í þessari þingsályktunartillögu. En eitt útilokar ekki annað. Við erum með boð og bönn víðar og ég er ekki að leggja til að við leysum okkur út úr þessu vandamáli með því að hækka lágmarksaldurinn og sinna ekki fræðslunni. Þetta verður að tala saman og til allra hópa og enn og aftur held ég að samþætt nálgun sé leiðin áfram í því.
Virðulegur forseti. Ég bind miklar vonir við að þingheimur standi með hagsmunum barna og ungmenna og nauðsyn þess að gæta betur að vernd þeirra af því að með núverandi fyrirkomulagi erum við að bregðast skyldum okkar. Við erum ekki að beita þeim úrræðum sem við gætum verið að beita til að tryggja betur öryggi barna og grípa og halda utan um börn sem eru að lenda í þessum skuggalegu hliðum samfélagsmiðla. Ég vona að þingheimur taki vel undir þessa tillögu og ég þakka öllum þeim sem standa að tillögunni með mér. Að lokum óska ég eftir því að hún gangi til allsherjar- og menntamálanefndar.