vernd barna og ungmenna á stafrænum vettvangi.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Ég tek undir það að þetta kann að vera flókið í útfærslu svona tæknilega séð en skilaboðin skipta engu að síður miklu máli. Það er annað sem ég hugsa um og það er hvernig við skilgreinum samfélagsmiðla. Mér verður hugsað til þess þegar ég var einhvern tímann í forsvari fyrir foreldrafélag eða bekkjarhóp, við vorum að ræða þessi mörk og að vera með bekkjarsáttmála um það einmitt að hleypa börnunum ekki of ungum á samfélagsmiðla og þá komu upp ýmis sjónarmið. Amma og afi þessarar búa á Akureyri og frændi og frænka í Danmörku og þá getur verið mjög heillandi að viðkomandi unglingur geti átt í samskiptum við sína nánustu ættingja sem búa annars staðar og hringt á Messenger eða með myndsímtali og sent skilaboð og deilt myndum og öðru þess háttar. Hefur hv. þingmaður velt því fyrir sér hvernig við skilgreinum samfélagsmiðla? Eigum við að hafa opið á skilaboðaforrit? Við þekkjum það líka að það er ekki lengur til heimasími. Þegar við fórum í sund í gamla daga og vildum bjóða vinum okkar með þá var kannski hringt. Það gerist ekki í dag og þetta hefur kannski komið í veg fyrir einelti því þú getur bara sent skilaboð á allan bekkinn og sagt: Ég ætla að fara í sund, eigum við að hittast núna? Þannig að það er líka margt mjög jákvætt við þessa nýju samskiptamöguleika sem þessi forrit hafa opnað. Ég vildi gjarnan fá viðbrögð hv. þingmanns við þessu.