157. löggjafarþing — 36. fundur,  20. nóv. 2025.

fyrirkomulag almannavarna.

[10:31]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Við búum í landi með einstakri en um leið ófyrirsjáanlegri náttúru sem getur á augabragði valdið stórkostlegum skaða, bæði á mönnum og munum. Við höfum mýmörg dæmi um slíkar náttúruhamfarir eins og eldgosið í Vestmannaeyjum, snjóflóðin á Flateyri og eldgosin á Reykjanesskaga. Við höfum sem betur fer komið okkur upp öflugu almannavarnakerfi til að bregðast við slíkum áföllum með það að markmiði að vernda fólk og eigur þess, enda hefur ríkið sérstöku almannavarnahlutverki að gegna gagnvart borgurum þessa lands. Hingað til hefur ríkið tekið almannavarnahlutverk sitt alvarlega og ræktað það af alúð og tillitssemi gagnvart þeim sem hamfarirnar ógna einna helst, en nú virðist einhver breyting ætla að verða þar á. Í fyrsta sinn hefur fjármálaráðherra litið svo á að almannavarnir séu einhvers konar óumbeðinn erindisrekstur og þeir sem bíða tjón vegna náttúruhamfara eru taldir hafa auðgast á óréttmætan hátt við það eitt að ríkið sinni almannavarnahlutverki sínu. Það eru kaldar kveðjur til þeirra sem eiga um sárt að binda vegna náttúruhamfara, að þeir megi búast við kröfubréfi frá hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra vegna almannavarnaaðgerða ríkisins.

Ég vil því spyrja hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra: Hyggst hann halda kröfum sínum á hendur fyrirtækjum á Reykjanesskaga vegna uppbyggingar varnargarða til streitu? Og hvað hefur þessi vegferð ráðherra kostað ríkissjóð í lögfræðikostnað?