157. löggjafarþing — 36. fundur,  20. nóv. 2025.

aðgerðir í efnahagsmálum.

[10:43]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni fyrir síðari spurninguna. Nú er það þannig að í áliti peningastefnunefndar kemur fram að ástæðan fyrir þeirri vaxtalækkun sem Seðlabankinn tók ákvörðun um byggir einvörðungu á mati hans á hertum skilyrðum á lánamarkaði. Þó að í álitinu komi fram að bankinn hafi auga á þeim áföllum sem hafa riðið yfir og afleiðingum þeirra og muni horfa til þeirra þá var það ekki gert í þetta skipti einfaldlega vegna þess að það er að mati bankans enn þá umtalsverð spenna í íslenska hagkerfinu. Einkaneysla er enn þá mjög mikil. Raunar sýna tölurnar sem Seðlabankinn fór yfir í tengslum við vaxtaákvörðunina að það er mikil bjartsýni í íslenska hagkerfinu. Við munum því áfram styðja bankann, eins og við höfum gert hingað til, (Forseti hringir.) í þeirri vegferð hans að ná niður vöxtum.