tollar ESB og hagsmunagæsla Íslands.
Virðulegur forseti. Nú var það ekki tillaga mín að við værum að svara í sömu mynt heldur værum við einfaldlega að nota sömu rök og Evrópusambandið notar, að það sé fullgilt og EES-samningurinn standi eftir sem áður og það sé bara eðlilegt að þjóðir geti nýtt þennan varnagla í EES-samningnum og tekið til varna þegar áhrif innflutnings á innlenda framleiðslu þeirra eru óþarflega mikil. Það er augljóst að það er þannig í dag í sambandi við innlenda matvælaframleiðslu. Við í Framsókn hyggjumst nú engu að síður — þó að viðbrögð ráðherrans séu frekar neikvæð og plan B hafi bara verið að reyna að fresta ákvörðun Evrópusambandsins nógu lengi, það plan B hljómar ekki mjög sannferðugt — leggja fram þingsályktunartillögu um þetta efni, að hækka tolla. Samhliða því, vegna þess að ég veit að fjármálaráðherra vill ná niður verðbólgunni, gæti auðvitað verið skynsamlegt að boða á sama tíma tímabundna lækkun á virðisaukaskatti á matvælum til að koma til móts við þá hækkun sem hugsanlega gæti orðið vegna hækkunar á tollum (Forseti hringir.) og þannig slá tvær flugur í einu höggi, koma til móts við tekjulág heimili og koma með alvörusleggju á verðbólguna. Bara gera eins og Svíar gerðu, tímabundin lækkun á virðisaukaskatti.