157. löggjafarþing — 36. fundur,  20. nóv. 2025.

fjármögnun þjónustu við börn og ungmenni.

[10:52]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Í dag, 20. nóvember, er alþjóðadagur barna og því verður málefnum barna gefinn sérstakur gaumur í samfélaginu, reyndar alla daga en sérstaklega í dag. Ég veit að hæstv. ráðherra er líðan og heilsa unga fólksins okkar mikið hjartans mál og honum hefur orðið tíðrætt um að það sé ýmislegt í gangi og allt eigi að fara að gera. Þess vegna skýtur það dálítið skökku við að heyra af því fréttir að nú sé í uppnámi samstarf við eitt af þeim góðu félögum sem sinnt hafa því verkefni að veita ókeypis ráðgjöf og stuðning fyrir ungmenni. Í þessu tilviki er ég að ræða Bergið headspace sem sinnir ráðgjöf og stuðningi fyrir ungt fólk á aldrinum 12–25 ára. Áður en ríkisstjórnin féll í fyrra var verið að undirbúa þriggja ára samning við Bergið headspace. Það stóð til að undirrita hann en ekkert varð af því. Nú berast af því fréttir að engin áform séu um það, alla vega kvarta þau undan því og lýsa yfir miklum áhyggjum. Ég veit að þeim er borgið þetta árið en þau lýsa yfir miklum áhyggjum af framtíðinni og kvarta undan því að ekki sé búið að skrifa undir þennan samning.

Þetta er sjálfstætt rekið félag og við hljótum öll að taka því fagnandi að þarna liggur að baki grasrót, foreldrar, sem þekkir málefnið frá fyrstu hendi og fer af stað. Við eigum að vera þakklát fyrir slíka starfsemi og taka henni fagnandi og styðja hana eins og hægt er því að það er fjárfesting í börnum og það er (Forseti hringir.) góð fjárfesting fyrir allt samfélagið. Ég spyr hæstv. ráðherra: Hvers vegna er ekki búið að ganga frá þessu samkomulagi?