fjármögnun þjónustu við börn og ungmenni.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þm. Rósu Guðbjartsdóttur fyrir frábæra fyrirspurn. Það gleður mig að segja að ég var nú bara á þriðjudaginn í Garðabænum út af barnvænu samfélagi og svo var ég í morgun í Kópavoginum, þar var frábær dagskrá um barnvænan Kópavog. Um leið vil ég óska öllum börnum innilega til hamingju með daginn vegna þess að þetta er þeirra dagur. Síðan verður auðvitað mikið fjör á morgun í Hörpu í sambandi við barnaþing sem ég hef virkilega gaman af að fara á.
En í sambandi við fyrirspurnina þá var einmitt fundur í gær með félagsmálaráðuneytinu, heilbrigðisráðuneytinu og menntamálaráðuneyti um nákvæmlega þetta mál. Við vorum að ganga frá samningum í gær og ég get alveg glatt hv. þingmann með því að við erum og munum sjá til þess að þetta frábæra starf sem þar er unnið haldi áfram. Ég hef tvisvar eða þrisvar farið í heimsókn til þeirra og starfið sem þeir eru að vinna er alveg frábært. Ég segi að við eigum einmitt að sjá til þess að svona félög geti unnið sína vinnu vegna þess að forvarnastarf þeirra er alveg til fyrirmyndar. Við vitum ekki hversu mikið þau hafa lagt á sig en þau eru að koma í veg fyrir það að börnin okkar lendi í þessum erfiðustu málum. Það skiptir rosalega miklu máli og við eigum, og ég stefni að því, að efla forvarnir á öllum sviðum vegna þess að forvarnir, númer eitt, tvö og þrjú, eru það sem við þurfum að gera til að sjá til þess að börnin okkar lendi ekki í þessum verstu málum.
Takk fyrir þessa fyrirspurn. Það er gleðilegt að geta sagt að við erum að vinna í þessu máli.