157. löggjafarþing — 36. fundur,  20. nóv. 2025.

fjármögnun þjónustu við börn og ungmenni.

[10:56]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Það gleður mig mjög að heyra að það sé búið að kippa þessu í liðinn. Það er gott að það sé fjör og húllumhæ út um borg og bý, en þetta er það sem máli skiptir: Að málin séu leyst og að slík starfsemi fái að blómstra áfram. Við höfum nefnilega horft upp á það að sjálfstætt rekin starfsemi á þessu sviði og þessu tengd, eins og Ljósið sem okkur hefur orðið tíðrætt um, Krýsuvíkursamtökin, Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra og svo mætti áfram telja, eins og kom fram fyrst í fjárlagaumræðu við heilbrigðisráðherra, hafi ekki fengið áframhaldandi stuðning eins og var við þessi sjálfstætt reknu félög og samtök. Það er miður því að þetta er gríðarlega mikilvægur þáttur í okkar samfélagi og við eigum að taka honum fagnandi. Þarna er yfirleitt fólk sem þekkir sjálft til, hefur reynsluna og bakgrunninn og það er það sem skiptir okkur svo miklu máli.

Ég spyr: (Forseti hringir.) Hvaða augum lítur hæstv. ráðherra það yfirleitt að sjálfstætt starfandi samtökum eins og þessum fjölgi, að þau eflist og fái framlög frá ríkinu til þess að bæta þetta allt saman?