fjármögnun þjónustu við börn og ungmenni.
Virðulegi forseti. Ég vil aftur þakka hv. þingmanni fyrir þessa fyrirspurn. Eins og ég sagði erum við að semja við Bergið headspace, erum á lokametrunum og vonandi getum við klárað þetta eins fljótt og auðið er. Ég er líka þar að við eigum að ýta undir þau félagasamtök sem virkilega eru að taka á málefnum barnanna okkar vegna þess að við vitum að í nútímasamfélagi eru börnin í hættu á mörgum sviðum. Ég er búinn að vera að hlusta á börn í verkefninu Barnvæn sveitarfélög og þau vita sjálf nákvæmlega hvað þeim er fyrir bestu. Þau hafa alveg á hreinu hvað er best að gera fyrir þau og þau vilja einmitt forvarnir. Þau vilja að það séð til þess að við séum virkilega að hugsa um það hvernig við getum komið í veg fyrir (Forseti hringir.) að þau lendi í slæmum málum. Ég styð öll þau félög sem virkilega berjast fyrir því að börnunum okkar líði vel í okkar samfélagi.