157. löggjafarþing — 36. fundur,  20. nóv. 2025.

kirkjugarðar, greftrun og líkbrennsla.

113. mál
[11:20]
Horfa

Frsm. meiri hluta allsh.- og menntmn. (Víðir Reynisson) (Sf):

Frú forseti. Ég mæli fyrir hönd meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breytingu á lögum um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu, lögum nr. 36/1993. Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á ákvæðum laga um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu, á lögum nr. 36/1993. Breytingarnar lúta annars vegar að því að lögfest verði heimild fyrir kirkjugarða til að innheimta gjald fyrir geymslu líka í líkhúsi og hins vegar er lagt til að kirkjugarðsstjórn verði heimilt að taka frá grafarstæði lengur en til 50 ára þegar eftir því er leitað og sérstakar aðstæður eru fyrir hendi.

Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund gesti og bárust umsagnir. Gögn málsins eru aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.

Frumvarpið var áður lagt fram á 156. löggjafarþingi og afgreitt frá allsherjar- og menntamálanefnd til 2. umræðu með áliti meiri hluta nefndarinnar þann 13. júní 2025, sem finna má á þskj. 718 í 253. máli á því löggjafarþingi. Líkt og fram kemur í greinargerð er frumvarpið nú endurflutt án breytinga. Til viðbótar við þá umfjöllun sem málið hefur nú fengið vísar meiri hlutinn til fyrri umfjöllunar og þeirra áherslna sem fram komu í áðurnefndu áliti á 156. löggjafarþingi.

Í kjölfar umfjöllunar nefndarinnar um málið vill meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar þó árétta sérstaklega:

Meiri hlutinn áréttar þau sjónarmið sem fram koma í umsögnum og greinargerð með frumvarpinu þess efnis að tímabært sé að fara í heildarendurskoðun á lögum um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu sem og að endurskoða samkomulag ríkis og kirkjugarðaráðs um framlag úr ríkissjóði til starfsemi kirkjugarða frá árinu 2005. Innan þeirrar endurskoðunar verði m.a. lagt á það mat hvort aðrar leiðir séu færar hvað varðar rekstrarvanda líkhúsa kirkjugarðanna.

Meiri hlutinn telur jafnframt mikilvægt að taka til heildstæðrar skoðunar ábendingar í umsögn frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga sem varðar tilvik þar sem andvirði eigna dánarbúa duga ekki fyrir kostnaði við geymslu líks, útfarar eða líkbrennslu og enginn eftirlifandi lögerfingi er til staðar. Þá vísar meiri hlutinn til þess að við fyrirliggjandi frumvarp liggur fyrir breytingartillaga á þskj. 133 sem varðar heimild til dreifingar ösku. Meiri hlutinn telur tillöguna ekki samræmast efni eða markmiði frumvarpsins sem varðar einkum rekstur líkhúsa en telur ástæðu til þess að taka til nánari skoðunar hvort tilefni sé að rýmka heimildir á grundvelli laganna til dreifingar ösku. Meiri hlutinn telur tímabært og beinir því til ráðherra að endurskoða lögin heildstætt svo að þau taki mið af þróun samfélagsins og endurspegli þær þjóðfélagslegu breytingar sem hafa orðið undanfarin ár og áratugi.

Að framansögðu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.

Undir álit meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar rita, auk þess sem hér stendur, María Rut Kristinsdóttir, Grímur Grímsson, Guðmundur Ari Sigurjónsson og Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir.