157. löggjafarþing — 36. fundur,  20. nóv. 2025.

Staða barna.

[13:10]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F):

Virðulegi forseti. Í dag er alþjóðlegur dagur barnsins og af því tilefni stöndum við talsmenn barna á þingi úr ólíkum flokkum saman að umræðu um stöðu barna á Íslandi. Mig langar til að byrja á að þakka hæstv. ráðherra málaflokksins fyrir að vera hér með okkur í dag. Við búum svo vel á Íslandi að flest börn hafa það gott. Hér ríkir friður, hér ríkir meiri velmegun en víðast hvar annars staðar. En samt sem áður er staðan þannig að hér eru ýmis mein sem við þurfum að uppræta. Mig langar í ræðu minni til að staldra við fjórar áskoranir.

Í fyrsta lagi þurfum við að ræða vímuefnanotkun ungs fólks og úrræðin því tengdu. Nýverið voru í fréttum mæður tveggja 14 ára drengja sem héldu með þá til Suður-Afríku vegna alvarlegs vímuefnavanda. Mæðurnar segja úrræðaleysið á Íslandi algert. Þær hafi því leitað erlendis að meðferð sem felur í sér mikinn kostnað.

Virðulegi forseti. Við verðum að láta fjármagn fylgja barni óháð því hvar meðferð fer fram. Við myndum ekki mismuna í öðrum veikindum. Börn með önnur veikindi fengju fjármagn til að fara í meðferð til annars lands. Þess vegna spyr ég hæstv. ráðherra hvort hann sé sammála mér að við eigum að passa upp á það að fjármagn fylgi barni í þessum málaflokki. Mismunum ekki eftir veikindum.

Í annan stað langar mig til að koma inn á stöðu drengja í skólakerfinu. Um 47% drengja geta ekki lesið sér til gagns samkvæmt PISA-mælingum árið 2022 við útskrift úr 10. bekk. Þriðjungur nær ekki grunnviðmiðum í stærðfræði og náttúruvísindum. Hefur bakgrunnur og umhverfi nemenda verið skoðað í þessu samhengi? Er þessi þróun að einhverju leyti tengd versnandi félagslegum aðstæðum eða hraðari fjölgun innflytjenda í skólakerfinu sem hafa verri bakgrunn í tungumálinu okkar? Hér verðum við að kafa á dýptina svo við getum tekið góðar ákvarðanir og skilið hver er rót vandans.

Einnig vil ég spyrja hæstv. ráðherra hvort það hafi verið gripið til einhverra aðgerða sem snúa að kennaranámi og kennslu almennt í ljósi þessara aðstæðna. Það er ekki í lagi að bregðast ekki hratt við þessari stöðu. Þetta á ekki bara við um grunnskólastigið. Við erum að horfa á það að í Evrópu er mesta brottfall drengja úr framhaldsskólum á Íslandi og einungis þriðjungur nýnema í háskóla eru drengir. Það er alvarleg staða. Við getum ekki látið drengi verða undir í samfélaginu okkar.

Þriðja málið sem mig langar til að tala um hér er ofbeldi og þá sérstaklega kynbundið ofbeldi. Barnaheill hefur verið óþreytandi í að ræða þessi mál við stjórnvöld og m.a. tekið saman staðreyndir úr íslensku æskulýðsrannsókninni frá 2024. Þær tölur eru sláandi. Um 700 börn í 8.–10. bekk segja að annar unglingur hafi átt við þau kynferðisleg samskipti gegn vilja þeirra. Um 250 börn í 8.–10. bekk sögðu einnig að einhver fullorðinn hefði haft við þau kynferðisleg samskipti gegn vilja þeirra. Mörg mál eru aldrei tilkynnt en samt sem áður eru hátt í tvö mál á viku tilkynnt til lögreglu. Mig langar til að heyra um aðgerðir hæstv. ráðherra á þessu sviði.

Umræðu á degi barnsins er svo ekki er hægt að ljúka án þess að hnykkja á mikilvægi þess að ná utan um símanotkun og samfélagsmiðla sem hefur verið rædd mikið í þessari viku. Þó að tæknin sé að mörgu leyti til góðs þá vitum við að of mikilli notkun fylgir kvíði, einangrun og neikvæður árangur í námi, sem er eitthvað sem við erum að glíma við sem samfélag. Því höfum við lagt fram þingsályktun um hækkun lágmarksaldurs og setja skorður á markaðssetningu og auglýsingar sem beint er að börnum. Það þarf að gera betur þegar við horfum á rammann sem snýr að notkun utan skólakerfisins, hvernig við pössum upp á þessi mál.

Virðulegi forseti. Það rúmast ekki allt í umræðunni í dag. Staða fatlaðra barna og staða barna með einhverfu eru málefni sem þarf að ræða frekar og ekki bara ræða frekar heldur þurfum við að sjá aðgerðir og sameinast um það sem þingheimur að setja þær í framkvæmd og setja þær í forgang. Ég vona að við getum (Forseti hringir.) gert það með þessari umræðu í dag. Ég vil að lokum minna á að rannsóknir sýna að meðganga og fyrstu 1000 dagarnir hafa mikið um það að segja hvernig börnum vegnar í lífinu almennt. (Forseti hringir.) Hverri krónu sem við fjárfestum í þessum málaflokki er vel varið. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)