Staða barna.
Virðulegur forseti. Við ræðum hér í dag það dýrmætasta sem við eigum, börnin okkar. Ný gögn um ofbeldi og stöðu barna og vímuefnanotkun minna okkur á að á bak við hvert prósent barna er nafn, fjölskylda og framtíð. Það er ekki bara tölfræði, þetta er raunverulegt líf. Samkvæmt Íslensku æskulýðsrannsókninni hafa 15% nemenda í 8.–10. bekk orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi og 34% hafa fengið óumbeðin klámfengin skilaboð. Við sjáum sem betur fer ekki almenna aukningu á kynferðislegu ofbeldi eða heimilisofbeldi á síðustu tveim árum en umfangið er samt gríðarlegt. Við sjáum líka að drengir verða oftar fyrir líkamlegu ofbeldi og einelti, sérstaklega í 6. og 7. bekk, en stúlkur eru mun líklegri til að verða fyrir kynferðislegu stafrænu ofbeldi. Tilkynningum til barnaverndar og lögreglu hefur fjölgað. Hluti þess skýrist af aukinni vitund og betri skráningu en hluti þess endurspeglar líka raunverulegan vanda.
Það er skylda okkar að bregðast við af fullri alvöru. Ráðuneytið hefur fjármagnað Íslensku æskulýðsrannsóknina svo við séum ekki að vinna í myrkri heldur með skýra mynd af stöðunni. Við höfum einnig sett á laggirnar, þvert á ráðuneyti, aðgerðahóp gegn ofbeldi gegn börnum og hefur þessi hópur mótað 25 aðgerðir. Þar er áherslan skýr; snemmtæk íhlutun, samhæft samstarf þannig að börn fari ekki á milli kerfa heldur að kerfið taki utan um börnin, skimun fyrir ofbeldi í grunnskólum, aukin fagleg nálgun gagnvart börnum, samræma verklag og tryggja betri þjónustu við þolendur og styrkja meðferðarúrræði Barna- og fjölskyldustofu. Við erum einnig að efla samfélagslöggæslu og svæðisbundið samráð. Fjármögnun þessara aðgerða er tryggð með skýrum forgangi í fjárlagafrumvarpinu. Þar er innleiðing aðgerða gegn ofbeldi meðal barna og gegn börnum ein af lykilaðgerðum í málefnum fjölskyldna fyrir árið 2026, auk nýrrar áætlunar um forvarnir gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi.
Virðulegur forseti. Ofbeldið er ekki lengur bara úti á götu eða inni á heimili. Það er líka í vasanum hjá barninu, í símanum. Þarna tengist umræðan um samfélagsmiðla og aldursmörk mjög skýrt. Stafrænt ofbeldi er raunverulegt ofbeldi. Ég hef lagt fram frumvarp um samræmdar reglur um símafrí í skólum en við þurfum að ganga lengra. Við þurfum líka að hækka aldursmörk fyrir börn á samfélagsmiðlum. Framfylgni á slíku getur þó aldrei byggt á refsingu. Hún þarf að byggjast á tvennu; skýrum reglum gagnvart fyrirtækjum og traustri fræðslu og samvinnu við foreldra og börnin sjálf en á þau þarf að hlusta. Þetta er ekki spurning um að tala fyrir börnin heldur með þeim.
Virðulegur forseti. Niðurstöður síðustu PISA-könnunar eru alvarlegt viðvörunarljós. Ísland er undir meðaltali OECD í lesskilningi, stærðfræði og náttúruvísindum og frammistaðan hefur dalað meira en áður hefur mælst milli tveggja mælinga. Svarið við þessu er ekki að stimpla einn hóp barna sem vandamál heldur laga kerfið. Ég vil nefna sex aðgerðir. Ný og endurbætt samræmd próf verða strax næsta vor. Nýr nemendagagnagrunnur á einnig að líta dagsins ljós sem gerir inngrip miklu auðveldari. Mælistikur í aðgerðaáætlun menntamála munu jafnframt sjá dagsins ljós fyrir áramót. Ný gæðaviðmið hafa verið sett þegar kemur að ytra og innra mati í skólum og á næsta ári mun ég leggja fram sérstakt frumvarp um aukna skólaþjónustu innan skólanna. Þá vil ég einnig nefna aukna áherslu á íslenskukennslu ásamt bættri lestrarkunnáttu. Hér er verk að vinna.
Virðulegur forseti. Að lokum vil ég nefna, þökk sé öflugu forvarnastarfi, að vímuefnaneysla ungmenna hefur dregist verulega saman á síðustu áratugum. Ekki eru merki um aukna neyslu á árunum 2023–2025, þvert á ýmsar fréttir. Ég heyri hins vegar vel hvað fólk segir en ég vil leyfa mér að vera hæfilega bjartsýnn með nýjum barnaverndarlögum sem ég hef lagt fram, endurbættu húsnæði Stuðla, betri aðkomu heilbrigðisyfirvalda að meðferð barna, nýtt meðferðarhúsnæði á Gunnarsholti og í Garðabæ ásamt uppbyggingu á svokallaðri Barnadeiglu í Mosfellsbæ. Markmiðið er einfalt en krefjandi: Að byggja upp traust til kerfisins, tryggja bæði líkamlegt og andlegt öryggi barna og gefa þeim sem það þurfa raunhæfa möguleika á að byrja upp á nýtt. Gerum þetta saman en gerum þetta vel.