157. löggjafarþing — 36. fundur,  20. nóv. 2025.

Staða barna.

[13:21]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S):

Frú forseti. Aðgengi að börnum og unglingum er afar mikið og líðan sumra þeirra ekki góð. Það sýna rannsóknir okkur. 75% stúlkna finna fyrir kvíða vikulega eða oftar, 55% fyrir depurð. Ungmenni hafa aldrei verið meira einmana en nú og eru meira einmana en elsti aldurshópurinn og í félagsfærni erum við aftast í Evrópu innan OECD-ríkjanna. Slæm líðan og mikið aðgengi fólks, sem þarf ekki að sanna deili á sér að börnum í gegnum snjallsíma, er verulega vond blanda og börnin okkar þá útsett fyrir hvers konar ofbeldi. Staða sumra drengja er hlutfallslega verri en stúlkna. Um helmingur drengja er ekki með grunnfærni í lesskilningi eftir tíu ára skyldunám og langflestir þeirra hafa verið þrjú ár í leikskóla; 13 ára nám í kerfinu okkar á Íslandi og helmingurinn er ekki með grunnfærni. Þetta er ekki boðlegt. Ljóst er að sjálfsmynd þeirra sem svona er statt fyrir er ekki góð. Að skilja ekki það sem maður les, horfir á eða hlustar á brýtur mann niður og er algjörlega til skammar fyrir okkar ríka samfélag. Á þessu verður að vinna bug en þetta er örugglega stór breyta í því að brottfall drengja úr framhaldsskóla er eins og það er. Ungir menn eru 23% líklegri til að vera hvorki í vinnu né skóla eftir að grunnskóla lýkur. Sú staða er bæði mannskemmandi og niðurbrjótandi fyrir drengina og auðvitað þær stúlkur sem eru í sömu stöðu og alla í kringum þennan hóp.

Umræðan um stöðu drengja, þeirra ungu manna sem hafa það ekki gott í samfélaginu, er afar lítil. Hvorki lög né erindisbréf embættismanna virðast megna að koma málefnum drengja inn í umræðuna. Sláandi dæmi um þetta er jafnréttisáætlun sem allsherjar- og menntamálanefnd hefur fjallað um í ákveðinn tíma þar sem einungis tvær af 40 aðgerðum snerta drengi eða karlmenn. Hvað ætlar ráðherrann að gera í þessu?