157. löggjafarþing — 36. fundur,  20. nóv. 2025.

Staða barna.

[13:24]
Horfa

Eydís Ásbjörnsdóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Ég vil í upphafi þakka hv. þm. Höllu Hrund Logadóttur fyrir þessa umræðu á sjálfum alþjóðadegi barnsins. Það er alltaf dýrmætt að við stöldrum við og ræðum hvernig börnunum okkar vegnar því að ekkert skiptir þjóðina meira máli en að þau fái að blómstra. Það hefur lengi verið ljóst að margir drengir eiga erfiðara með að finna sig í skólakerfinu. Rannsóknir, m.a. eftir Ingólf Ásgeir Jóhannesson, prófessor í HÍ, hafa bent á að drengir dragist frekar aftur úr bæði námslega og félagslega og að sjálfsmynd þeirra sé stundum brothætt innan skólans. Þetta kallar á að við skoðum kerfin okkar vel af einlægni og af hugrekki. Hvaða skilaboð sendum við börnunum okkar? Erum við að mæta þeim eins og þau eru, með sínar ólíku þarfir og styrkleika? En það er líka mikilvægt að gleyma ekki að margar stúlkur, sérstaklega þær sem glíma við ADHD, einhverfu og aðrar áskoranir, greinast oft allt of seint og fá þá ekki þann stuðning sem þær þurfa. Við eigum að byggja upp menntakerfi sem sér öll börn, líka þau sem standa á jaðrinum. Þar má ekki gleyma þeim hópi barna sem skilgreina sig kynsegin. Þau þurfa skýra, örugga umgjörð þar sem þau upplifa að við sjáum þeirra þarfir. Úrræði og námsleiðir fyrir öll börn þurfa að vera skýrar, byggðar á traustum gögnum og fylgt eftir af festu svo breytingarnar verði varanlegar.

Virðulegi forseti. Framtíð barnanna okkar er sameiginlegt verkefni sem kallar á okkur núna.