Staða barna.
Forseti. Ég get verið sammála hæstv. ráðherra að börnin eru það dýrmætasta sem við eigum, en ég verð að viðurkenna að ég er orðin ansi þreytt á orðum án aðgerða. Frá því að ráðuneyti barna, barnamálaráðherra, varð að veruleika þá virðast málefni barna hafa versnað og versnað, alla vega miðað við fréttaflutning. Löggjöf um farsæld barna var líka samþykkt en þar fylgdi ekkert fjármagn. Allt kapp verið sett á dyggðaskreytingar, nefndir, hópa, ráð, myndatökur, allt á kostnað raunverulegra aðgerða. Getur það verið svo?
Frú forseti. Ég er í þverpólitískum vinnuhóp sem ég hélt að ætti að taka á bráðavanda á meðan ráðuneytið ynni í langtímaplönum en eini tilgangurinn virðist vera sá að vængstýfa minni hlutann þannig að hann láti minna í sér heyra og ekkert gerist. Mánuð eftir mánuð eftir mánuð er ekkert að gerast í bráðavanda barna. Þegar ríkisstjórnin tók við blasti við að neyðarástand var varðandi meðferðarúrræði fyrir börn með fjölþættan vanda og fíkniefnavanda sérstaklega. En hvað gerist? Ég átti orðastað við hæstv. heilbrigðisráðherra sem sagði mér að það væri í lögum um sjúkratryggingar heimild til að fara með börn í meðferð erlendis þegar við getum ekki boðið upp á hana hér. Raunveruleikinn er síðan þannig að kerfið stoppar þetta. Mennta- og barnamálaráðuneytið er ekki búið að samþykkja meðferðarheimilin. Á meðan eru þessi börn að bíða, geta ekki komist að hér eða, eins og hv. þm. Halla Hrund minntist á, þá taka foreldrar upp á því að fara til Suður-Afríku og leysa þetta sjálf. Af hverju er ráðuneytið ekki að vinna að því að finna út hvert þessi börn geta farið? Ég held áfram í seinni ræðu minni.
(Forseti (HildS): Forseti minnir á að vísa til annarra hv. þingmanna með fullu nafni.)