157. löggjafarþing — 36. fundur,  20. nóv. 2025.

Staða barna.

[13:28]
Horfa

Jón Gnarr (V):

Frú forseti. Ég þakka fyrir þetta tækifæri til að koma hingað upp og ræða þetta hjartans mál okkar allra. Við sjáum í upphlaupi t.d. í fjölmiðlum, í fréttum þar sem foreldrar eða aðstandendur koma fram og segja sögu sína og að þau hafi ekki náð árangri og ekki fengið hjálp fyrir börnin sín, að það eru nær undantekningarlaust, eftir að hafa skoðað þessi mál nokkuð vel, strákar í mjög alvarlegri fíkniefnaneyslu. Við Íslendingar erum meðal fremstu þjóða í heiminum í áfengis- og fíkniefnameðferðarfræðum. Við höfum verið brautryðjendur í þeim fræðum á heilbrigðissviði. Við höfum tekið þátt í að byggja upp meðferðarúrræði erlendis vegna þess að við búum yfir sérfræðiþekkingu sem aðrar þjóðir búa ekki yfir. Við getum státað okkur t.d. af íslenska forvarnamódelinu þar sem við náðum niður neyslu ungmenna þannig að heimsathygli vakti. Með efnahagshruninu byrjuðum við að missa þetta niður og nú erum við að uppskera afleiðingar af Covid sem eru alvarlegar. Það er enn þá hægt að segja að margt sé í góðu lagi en það fer hratt versnandi. Þetta er mjög alvarlegt mál og ég skil ekki fyrir mitt litla líf hvernig við förum að því að líta á fíkniefnavanda barna og unglinga ekki sem heilbrigðisvandamál heldur eitthvað annað, sem einhvern hegðunarvanda. Þetta er heilbrigðisvandi og við eigum að taka á honum með heilbrigðisstarfsfólki. Við eigum að nauðungarvista börn í meðferð og í samstarfi við fagaðila eins og SÁÁ. Það er mín skoðun.