157. löggjafarþing — 36. fundur,  20. nóv. 2025.

Staða barna.

[13:31]
Horfa

Skúli Bragi Geirdal (F):

Virðulegi forseti. Ég vil nýta tíma minn hér í dag til að ræða stafrænan veruleika og stöðu drengja og tek þá skýrt fram að ég er ekki með nokkru að gera lítið úr stöðu stúlkna eða stálpa með því, jafnrétti er hagsmunamál okkar allra. Þegar við skoðum gögn um ofbeldi og stöðu drengja í menntakerfinu er hætt við að við málum upp dökka mynd, að þeir séu á einhvern hátt verri, lakari eða áhugalausir. Staðan er hins vegar einfaldlega sú að drengirnir sjálfir eru ekki vandamálið. Lítum frekar á félagslegar aðstæður þeirra, umhverfi, bæði raunverulegt og stafrænt, fræðsluefni og úrræði. Er efnið sem við bjóðum upp á að tala til drengja eða niður til þeirra? Erum við of fljót að dæma það sem við skiljum ekki? Er rafræn vinátta ekki vinátta? Eru rafræn áhugamál og íþróttir ekki alvöruíþróttir og -áhugamál? Nei, samtal við ungt fólk er lykilatriði til að skilja veruleika þess. Ef ég fæ ekki að spyrja spurninganna heima eða í skólanum af hræðslu við að vera dæmdur þá finn ég spurningunum mínum annan stað og fæ svörin þar. Ef við erum ekki áhrifavaldarnir í lífi barnanna okkar þá leita þau annað. Verum til staðar og verum óhrædd við að eiga erfið samtöl, líka um það sem við erum hjartanlega ósammála um, án þess að dæma heldur til að skilja og læra.

Virðulegi forseti. Það er ekki bara einhver einn staður sem ber ábyrgð; skólinn, heimilið eða þorpið sem við tölum stundum um að þurfi til að ala upp eitt barn. Með nýjum stafrænum áskorunum þarf ekkert minna til en að landið allt horfi til þess að bregðast við þeirri stöðu sem nú blasir við í málefnum barna í dag. Eins og hv. þm. Halla Hrund Logadóttir kom hérna inn á áðan var lögð fyrir þingsályktunartillaga um vernd barna á stafrænum vettvangi hér í gær. Þar erum við ekki að afneita stafrænum veruleika barna heldur einmitt að tryggja það að við gætum að öryggi svo þau geti nýtt þann vettvang á öruggan og skilvirkan hátt. Meðvitundarleysi þarf að enda hér og við þurfum að taka stöðu með börnum og tryggja velferð þeirra og ég skora á hæstv. mennta- og barnamálaráðherra að tryggja framtíð forvarna og fræðslu á stafrænum vettvangi og um stafræn mál því það er ekki staðan í dag.