157. löggjafarþing — 36. fundur,  20. nóv. 2025.

Staða barna.

[13:33]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf):

Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka málshefjanda fyrir þessa umræðu og taka undir með hæstv. ráðherra að þessi umræða skiptir miklu máli enda eru börnin það dýrmætasta sem við eigum. Í vikunni var Íslenska æskulýðsrannsóknin kynnt. Þar kom vissulega fram að það er við ýmsar áskoranir að etja eins og fram hefur komið hér í umræðunni en helstu niðurstöður eru hins vegar að börnin eru á góðum stað félagslega. Sérstaka athygli vakti hjá mér hve hátt hlutfall barna stundar skipulagt íþróttastarf. Þetta undirstrikar mikilvægi jákvæðs æskulýðs- og íþróttastarfs sem forvarnar. Íþróttastarf er einnig góð leið fyrir ungmenni af erlendum uppruna til að blanda geði og mynda félagsleg tengsl við jafnaldra. Það er áhugavert í þessu samhengi að þátttaka ungmenna af erlendum uppruna er marktækt minni í skipulögðu íþróttastarfi en íslenskra barna. Hér er því tækifæri til að gera betur og ná því þar með hraðari og jákvæðari aðlögun að íslensku samfélagi. Það má ráða af rannsókninni að foreldrar setji ungmennum ramma, fylgist vel með börnum sínum og séu í góðum tengslum við vini og jafnvel foreldra vina barna sinna. Í rannsókninni kom fram tækifæri fyrir íþróttahreyfinguna, þ.e. að skapa börnum og ungmennum betur kost á að komast í skipulagt starf án þess að markmiðið sé keppni, því það kemur fram í þessari rannsókn að það sé brottfall eftir því sem börnin eldast og síðan að börn af erlendum uppruna taki minni þátt í íþróttastarfi. Hér eru því tækifæri og við eigum að horfa einnig á þá jákvæðu þætti sem blasa við í umhverfi barna og uppvexti ungmenna á Íslandi.