157. löggjafarþing — 36. fundur,  20. nóv. 2025.

Staða barna.

[13:35]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Til hamingju öll með þennan alþjóðadag barna og takk fyrir að brydda upp á þessari mikilvægu umræðu á þessum góða degi. Ég ætla að byrja á því að vera svolítið jákvæð því að það hefur aldrei verið betra að fæðast inn í þennan heim en einmitt í dag og Ísland er örugglega með þeim löndum þar sem er hvað best að alast upp sem barn. Börnin okkar eru frábær og við eigum að fagna þeim. En það eru auðvitað ýmsar áskoranir og það er okkar, fullorðna fólksins, svo ég tali nú ekki um fólksins í þessum sal, að takast á við þessar áskoranir. Margar þeirra hafa verið nefndar hér í dag og ég get tekið undir með mörgum. Áskorunin sem lýtur að því að öll börn eigi sömu tækifæri skiptir íslenskt samfélag miklu máli til langrar framtíðar. Þar vil ég minna sérstaklega á þingsályktunartillögu mína varðandi móttökuskóla og mikilvægi þess að við tökum á móti börnum af erlendum uppruna þannig að þeirra þörfum sé sinnt.

En mig langar að leggja höfuðáherslu á fíkniefnavandann sem sum börn glíma við eins og fullorðnir. Þar verðum við einfaldlega að eiga betri lausnir. Ég hef ítrekað talað fyrir því hér í þessum sal að fjármagn fylgi sjúklingum í þessum efnum. Þannig að ég tek undir með hv. þm. Höllu Hrund Logadóttur; fjármagnið ætti að fylgja barni. Ég lagði fram fyrirspurn til hæstv. heilbrigðisráðherra á síðasta þingi þar sem ég spurði út í það hversu margar umsóknir Sjúkratryggingar hefðu fengið um fíkniefnameðferð erlendis og hversu margar hefðu verið samþykktar. Þetta eru u.þ.b. átta umsóknir á ári. Þegar ég spurði hæstv. ráðherra hvort hún teldi ástæðu til þess að skoða samninga við aðila erlendis þá segir í lok svarsins að það séu aðeins í gildi samningar um heilbrigðisþjónustu erlendis ef um er að ræða læknisfræðilega brýna meðferð sem ekki er unnt að veita á Íslandi. (Forseti hringir.)

Virðulegur forseti. Staðan er sú í dag í þessum málaflokki. Við getum ekki veitt brýna mikilvæga læknisfræðilega meðferð við vímuefnavanda margra barna (Forseti hringir.) og þá ber okkur að sjá til þess að þessi börn fái þá þjónustu þó að hún sé utan landsteinanna og Sjúkratryggingar Íslands eiga að greiða þann kostnað.