157. löggjafarþing — 36. fundur,  20. nóv. 2025.

Staða barna.

[13:40]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M):

Frú forseti. Ég ætla að byrja á að segja að ég gæti eiginlega tekið undir hvert einasta orð sem hv. þm. Jón Gnarr sagði hérna áðan. Mig langar aðeins að halda áfram með fíkniefnaneyslu og vandamál henni tengt því að meðferðarúrræði fyrir börn eru þannig að fíkniefni streyma inn þar sem meðferðarúrræðin eru veitt og börn eru að strjúka af því að það má ekki grípa til neinna aðgerða. Því spyr ég: Hefur starfsfólk nægar heimildir? Ég held að það sé augljóst að það hafi það ekki til að geta tekið á vandanum. Við erum því líka að gera lífið ofboðslega erfitt fyrir þá aðila sem vinna í þessum málaflokki því að þeir hafa engar heimildir til að taka á þeim vanda þegar fíkniefnin eru að koma inn á meðferðarheimilin sjálf. Það er einhvern veginn ótrúlegt og ég ætla að biðja hæstv. mennta- og barnamálaráðherra að koma lagi á þau mál.

Svo langar mig líka að ræða: Af hverju er ekki stutt við úrræði sem eru að virka? Tökum Fjölsmiðjuna sem dæmi, frábært úrræði. Við erum í vanda en við þurfum alltaf að finna upp hjólið. Við eyðum öllum tímanum í að finna upp nýtt hjól í staðinn fyrir að laga það sem þarf að laga og bæta það sem er að virka vel. Nei, við gerum það ekki og hæstv. ráðherra fór hérna yfir vandann áðan. Hann fór yfir það að skýrslan væri klár, niðurstöður aðgerðahópsins væru skýrar, PISA-niðurstöðurnar væru skelfing og ný barnaverndarlög ættu að koma. En hvað ætlar hæstv. ráðherra að gera núna? Þessi umræða er góð og ég vona að hún skili einhverju. En ég óttast að hún sé bara til að tikka í boxin til að sýna að eitthvað hafi verið gert.