157. löggjafarþing — 36. fundur,  20. nóv. 2025.

Staða barna.

[13:47]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Guðmundur Ingi Kristinsson) (Flf):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Höllu Hrund Logadóttur fyrir þessa frábæru umræðu og ykkur öllum hér inni. Við megum ekki gleyma því að í dag er mannréttindadagur barna, 20. nóvember. Hvað þýðir það? Við verðum að virða börnin og fara að mannréttindum. Við höfum ekki rétt á því að loka börn inni án þess að fara að lögum og reglum. Að senda börn til útlanda er ábyrgðarmál. Hvernig eigum við að tryggja öryggi þeirra þar og að farið sé að lögum og reglum barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna? Ég treysti mér ekki til að tryggja það en ég skal gera allt sem ég get til að tryggja rétt þeirra hér innan lands og sjá til þess að þessi úrræði virki; Stuðlar, Gunnarsholt og allt sem við erum að gera. Því miður er staðan sú að mygla í húsnæðinu, asbest, hefur valdið því að húsnæðið sem á að hýsa aðstöðu fyrir börnin hefur ekki virkað. Verið er að gera allt sem mögulegt er til að sjá til þess að þetta klárist sem fyrst og ég vona að við fáum fréttir strax í desember um t.d. Gunnarsholt. Um leið og Gunnarsholt kemst í gagnið verða Stuðlar teknir. Við ætlum að gera allt sem við getum til að stöðva það að fíkniefni komist inn á Stuðla. Það er ekki ásættanlegt. Við eigum að sjá til þess að börn sem eru í okkar umsjá komist ekki í fíkniefni. Um það erum við öll sammála. Ég skal alveg segja það að ef ég gæti breytt fortíðinni á örfáum mánuðum í nútíðinni þá væri ég löngu búinn að því en ég ætla enn og aftur að halda áfram að gera mitt besta og lofa börnunum því á þessum degi að ég mun fara að mannréttindum þeirra og lögum og reglum við það.