framhaldsskólar.
Frú forseti. Ég mæli hér fyrir áliti 1. minni hluta allsherjar- og menntamálanefndar og geri það fyrir hönd framsögumanns málsins sem er fjarverandi, hv. þm. Jóns Péturs Zimsen. Auk okkar tveggja stendur einnig að álitinu hv. þm. Snorri Másson. Málið er hér komið endurflutt og hefur verið til umfjöllunar í allsherjar- og menntamálanefnd. Það eru nokkur atriði þar sem ég tel rétt að staldra við og vikið er að í þessu minnihlutaáliti.
Fyrst vil ég þó nefna eitt atriði sem er 2. gr. frumvarpsins og var hér til umræðu þegar málið var í 1. umræðu hér í þingsal. Það varðar sem sagt heimild framhaldsskólanna til þess að hafa með sér samstarf um rekstur ákveðinna þátta í starfi skólans. Þetta sætti nokkurri furðu í þingsal. Heimildin sem slík er góð og gagnleg og mikilvæg fyrir starfsemi skólanna, að þeir geti þá átt í slíku samstarfi og gert slíka samninga sameiginlega ef þeir kjósa svo. Þetta væri sem sagt á forræði og ábyrgð framhaldsskólanna sjálfra og skólastjórnendanna. Það er skynsamlegt upplegg að skólastjórnendur sjái hagræði í því að eiga í slíku samstarfi en það vakti nokkra athygli mína og annarra þingmanna hér hvernig þessi grein fellur svo saman við hugmyndir hæstv. mennta- og barnamálaráðherra um svæðisskrifstofur framhaldsskóla, þar sem akkúrat er verið að taka þetta vald af skólastjórnunum, það er hugmyndin, að færa það inn í eitthvert nýtt viðbótarstjórnsýslustig, svæðisskrifstofu framhaldsskólanna, sem færi þá með akkúrat þetta hlutverk. Það er svolítið skrýtið að vera að ræða hérna tvær hugmyndir á sama tíma sem eru ósamstæðar. Það er í það minnsta erfitt fyrir mig að átta mig á því hvert ráðherrann er að fara með þessu og hvert uppleggið er. Á þessi hugmynd, sem hér er verið að mæla fyrir að fari í lög, að vera tímabundin þar til svæðisskrifstofur komast í gagnið eða á að hafa þessar heimildir samhliða? Þetta er eitt atriði sem ég vildi nefna.
Fyrir nefndina komu nokkrir gestir. Eins og ég segi þá er málið endurflutt og því rétt og eðlilegt að líta til umsagna sem bárust nefndinni þegar það var fyrst tekið fyrir. Umræður í nefndinni hafa verið góðar og gagnlegar og ég þakka hv. framsögumanni frumvarpsins fyrir samstarfið í nefndinni sem og öðrum þingmönnum sem tóku þátt í umræðunum. Þær voru góðar og gagnlegar. Það eru nokkur atriði sem standa helst út af og eru nokkuð viðkvæm af ýmsum ástæðum. Það er kannski fyrst þessi breyting á innritunarreglum framhaldsskólanna sem birtist í 13. gr. frumvarpsins. Þarna er sem sagt verið að færa í lög heimildir til að líta til fleiri þátta en námsárangurs nemendanna. Það er verið að færa í lög heimild til að líta til fleiri þátta er varða nemandann sjálfan. Fyrir því geta verið ýmis rök en þarna er líka verið að færa í lög heimild til að líta til þátta er varða ekki nemandann sjálfan heldur einhverja stærri, ótilgreinda heildarhagsmuni sem kalla má hvaða nöfnum sem er og geta ráðið innritun, leitt til einhvers konar forgangsreglna en gera það að verkum að hæfasti nemandinn, hvort heldur sem litið væri til námsárangurs eða annarra þátta, kemst ekki í draumaskólann sinn vegna þess að ráðherra, eftir atvikum eða hugsanlega skólastjórnendur en í grunninn ráðherra, hefur komist að þeirri niðurstöðu að betra sé út frá einhvers konar heildarhagsmunum að víkja frá því, til að mynda, eins og segir í frumvarpinu, til að auka fjölbreytni í nemendahópnum.
Þarna er sem sagt einstaklingur sem kemst ekki inn í draumaframhaldsskólann sinn sökum þess að einhver í stjórnsýslunni hefur komist að þeirri niðurstöðu að það þjóni hagsmunum heildarinnar, ásýndar nemendahópsins eða hvað það nú er, fjölbreytileika hans, að líta til annarra þátta. Þetta er að mínu viti nýmæli í lögum og að einhverju leyti fært í þann búning að tilefnið sé álit umboðsmanns Alþingis frá því fyrir 10–15 árum síðan, ef ég man rétt. Við það er rétt að staldra stuttlega vegna þess að það er auðvitað rétt hjá hv. framsögumanni málsins að hvort heldur sem er stjórnsýslunni eða okkur sem störfum við að setja lögin beri að sjálfsögðu að taka mið af álitum umboðsmanns en þá þarf líka að rýna vel í þau. Það er að sjálfsögðu ekkert í þessum álitum umboðsmanns sem mælir fyrir um að það eigi að setja svona reglur eins og hér er verið að mæla fyrir. Svo er ekki, heldur er umboðsmaður Alþingis að fjalla um þágildandi forgangsreglur sem réðust að miklu leyti af því í hvaða grunnskóla nemandinn var sem gerði það að verkum að það réðist í grunninn af búsetunni. Umboðsmaður Alþingis er að segja að til að búsetan ráði för þurfi að byggja á viðeigandi heimild í lögum. Umboðsmaður segir reyndar að það kunni hreinlega að vera nægjanlegt að mæla fyrir um það í reglugerð. Þetta skiptir máli vegna þess að umboðsmaður segir akkúrat þarna að eðlilega eigi ramma og viðmið innritunarreglna í framhaldsskóla að leiða af lögum. Það er bara sjálfsagt og eðlilegt, ekki það að nauðsynlegt sé að útfæra reglurnar eins og gert er í þessu frumvarpi, sem að mínu viti gengur of langt. Það kunna að vera sjónarmið með og á móti því að aðrir þættir en eingöngu námsárangur eigi að hafa eitthvað vægi við innritun. Það er afskaplega vandmeðfarið. Ég held í rauninni að það sé mjög erfitt að útfæra slíkt innritunarferli án þess að það verði á endanum geðþóttakennt. Það er eitt. Svo er það hitt, að taka hagsmuni heildarinnar fram yfir hagsmuni nemandans sjálfs. Þetta er auðvitað alvörumál. Fyrir hvern útskrifaðan grunnskólanema er ákvörðun um umsókn og inngöngu í framhaldsskóla meiri háttar mál, skiljanlega. Þetta hefur mótandi áhrif á framtíðina, þarna er fólk að kynnast sínum vinum, tilvonandi samstarfsfélögum, mökum og öðru slíku. Þetta er alveg meiri háttar mál og þarna er verið að útfæra reglurnar með þessum hætti.
Ég staldra líka aðeins við það að í nefndaráliti meiri hlutans er þess getið, ég ætla ekki að segja í afsökunarskyni, en þess er getið að hér sé um heimild að ræða en ekki skyldu, sem er vissulega rétt. Lagafrumvarpið sjálft mælir ekki fyrir skyldu þess að forgangsraða nemendum með einhverjum hætti heldur veitir til þess heimild. Heimildin er hins vegar ráðherrans til að mæla fyrir um þetta í reglugerð. Ráðherrann getur fullnýtt þessa heimild og þannig tekið fram fyrir hendurnar á skólunum með því að ákveða einmitt að einhver svona sjónarmið eins og fjölbreytileiki eða annað eigi að hafa vægi við innritun og hafi þessar afleiðingar algjörlega óháð því hvað skólastjórnendum finnst. Ef maður fer í gegnum umsagnir þeirra sem höfðu athugasemdir við frumvarpið, sem var mjög fróðlegt að lesa, fannst mér rauði þráðurinn í þeim vera nokkuð á þá leið, hvort heldur sem þær komu frá skólakerfinu eða atvinnulífinu og eftir atvikum nemendum, að það treysta allir skólanum sínum. Fólk treystir skólastjórnandanum í raun og veru betur en hinu opinbera, hvort sem það er þá ráðuneytið eða ráðherrann. Almennt er það þannig. Verði þetta frumvarp að lögum vona ég því að þeir ráðherrar sem hafa þessa heimild fari vel með það traust og verði minnugir þess að í grunninn er frekar ákall um það að skólarnir fái sjálfir ráðið þessu.
Þetta er kannski það fyrsta sem ég vildi nefna varðandi innritunina sjálfa. Í grunninn held ég að það sé heillavænlegast að nemandinn sé sjálfur hafður í forgrunni þegar kemur að ákvarðanatöku um innritun hans. Staða nemandans, þess er sækir um, hlýtur að vera útgangspunktur í þessu öllu. Þá komum við að þessu sem er vikið að í nefndaráliti okkar, að námsárangur nemenda og þekking ætti auðvitað að vera aðalatriðið þegar kemur að þessu mati. Það er auðvitað svolítið strembið í dag því það eru ekki til neinir samræmdir mælikvarðar. Þetta er erfitt verkefni en við bendum á þetta. Útgangspunkturinn hlýtur að vera námsárangur nemenda því annars er hætta á ójafnræði og geðþóttaákvörðunum. Það er hætta á því að það sé verið að senda röng skilaboð til grunnskólanema, þeirra sem eru að ljúka sínu grunnskólanámi, og að námsárangurinn sjálfur sé að einhverju leyti gengisfelldur og hafi minni þýðingu í stað þess að börn séu hvött til að afla sér þekkingar og leggja sig fram til að ná góðum námsárangri.
Þetta eru svona nokkur atriði varðandi innritunina sjálfa. Ég tel að þetta skipti verulegu máli. Það er nærtækara að skólarnir sjálfir fái að gera þetta með málefnalegum hætti í stað þess sem segir í greinargerð með frumvarpinu, og er svolítið erfitt að átta sig á hvað felst í, en í tilefni lagasetningarinnar er talað um að allir framhaldsskólar axli ábyrgð á fjölbreyttum nemendahópi. Þarna er kannski einfaldlega verið að byrja á öfugum enda. Það er ekki hægt að stíga með ákveðnum hætti inn í framhaldsskólastigið og segja: Heyrðu, þetta er ykkar hlutverk, að axla ábyrgð á þessu ástandi. Við ætlum að gera það með sértækum hætti með því að mismuna nemendum, taka inn aðra sem standa verr að vígi námslega séð eða eru eftir atvikum afreksfólk í íþróttum eða tónlist eða hverju einu. Mæli einstaklingsbundnir mælikvarðar fyrir um að viðkomandi ætti að vera ofarlega á blaði þá kemst hann samt ekki að út af ætluðum hagsmunum heildarinnar af fjölbreyttum nemendahópi. Slíkt gerum við ekki við innritun í framhaldsskóla. Það gerum við með því að styrkja grunnskólastarfið, búa börnunum okkar gott félagslegt umhverfi, aðstæður og möguleika til náms þannig að hvert barn fái notið tækifæra og réttar til að spjara sig og skara fram úr. Þar gerum við þetta ekki svona. Það lýsir ákveðnu metnaðarleysi að ætla skólunum að gera þetta með þessum hætti.
Annað varðar 14. gr. frumvarpsins en þar er aftur mælt með nokkuð ítarlegum hætti fyrir um skólareglur og viðurlög og gengið býsna langt í því að útfæra þetta með nákvæmum hætti. Við sem stöndum að baki þessu áliti 1. minni hluta höfum ákveðnar efasemdir um að þetta sé leiðin, að lögfesta svona ítarlegar reglur sem er ætlað að taka á öllum mögulegum og ómögulegum aðstæðum sem upp geta komið í skólasamfélaginu. Við teljum í raun og veru að betur færi á því að skólarnir gætu sett sér reglur. Ákvæði um skólabrag eru að meginstefnu fullnægjandi. Hættan við svona útfærslu er að mönnunum mistakist og þeir fari að skapa vanda, geislavirkan úrgang, eins og t.d. að hægt sé að skylda fólk til að hlíta fyrirmælum starfsfólks skóla, þar á meðal í starfi á vegum nemendafélaga framhaldsskóla. Ég þekki það bara sjálfur sem fyrrverandi framhaldsskólanemi að hafa einu sinni setið í stjórn einhvers konar skólafélags og verið kallaður inn á teppið hjá skólastjóranum út af hinu og þessu sem kom upp á í okkar félagslífi. Sumt af því var á ábyrgð nemendafélagsins, annað ekki, og maður fékk bara svona föðurlegt tiltal en þar við sat vegna þess að nemendafélagið var bara nákvæmlega það: Félag okkar nemenda, ungs fólks að spreyta sig á sínum fyrstu skrefum í lífinu og gera fullt af mistökum. Það er nú það fallega við framhaldsskólann, þetta er akkúrat tíminn til að að misstíga sig í nokkuð vernduðu umhverfi. Þetta gerðum við allt saman. Hér er fullorðna fólkið hins vegar að taka fram fyrir unga fólkinu og ég skil ekki hvers vegna þurfi að lögfesta þetta. Það er auðvitað bara hluti af þroskaferli hvers einstaklings og hluti af réttindum þessa unga fólks, ungra framhaldsskólanema, að taka sjálft ákvörðun um hvort, að hve miklu leyti og hvernig það tekur þátt í félagslífi í framhaldsskólum. Þau eiga ekki að vera undirorpin einhverju valdi kennara eða annarra stjórnenda skólanna hvað það varðar. Því gagnrýnum við þetta og teljum að þarna felist töluvert inngrip í frelsi þessara einstaklinga til að ráða sínum félagsmálum. Vísa ég í því sambandi til umsagna sem hafa borist nefndinni frá Sambandi íslenskra framhaldsskólanema. Ég vísa líka til umræðna sem urðu þegar málið var upphaflega flutt hér og komst reyndar í fjölmiðla. Þær komu frá framhaldsskólanemum sem voru mótfallnir nákvæmlega þessu ákvæði og skrifuðu greinar og annað slíkt. Á endanum held ég að þeir hafi ekki fengið að mæta fyrir sjálfa nefndina en úr því er bætt í þessari atrennu. Að svo komnu ítreka ég þau sjónarmið sem greint er frá í áliti okkar í 1. minni hlutanum. Við leggjum til að frumvarpið verði samþykkt með þeirri breytingu að 13. og 14. gr. falli brott.