157. löggjafarþing — 36. fundur,  20. nóv. 2025.

framhaldsskólar.

154. mál
[14:25]
Horfa

Eydís Ásbjörnsdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég ætla aðeins að koma inn á það í stuttu máli að með þessu frumvarpi er ekki verið að endurskrifa allt kerfið. Það er verið að styrkja það og þar með hluti sem þegar hafa verið byggðir upp. Það er verið að setja í lög atriði sem þegar eru komin í gang og er verið að vinna eftir. Þar langar mig að nefna innleiðingu ferilbókarinnar, sem sagt vinnustaðasamningsins í verk- og starfsnámi. Þetta hefur þegar verið tekið í notkun og tekur í rauninni við af gamla samningnum sem ég tel mjög gott því þarna hefur skólinn yfirsýn og ábyrgðin á að fylgja eftir starfsnámi er í raun komin á herðar meistaranum og nemanum. Þar er meira horft til þess að nemandinn uppfylli tilskilin viðmið frekar en að horft sé til tímans; að hann hafi náð þeim viðmiðum sem hann á að ná.

Mig langaði að koma aðeins inn á það sem hv. þm. Sigurður Örn Hilmarsson kom inn á varðandi samstarf framhaldsskólanna. Það er eitt af því sem þegar er verið að gera. Nú vil ég horfa til landsbyggðarinnar. Þetta er bara það sem skólar á landsbyggðinni hafa verið að gera í mörg ár. Mig langar að nefna Verkmenntaskóla Austurlands, Menntaskólann á Ísafirði og Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki. Þar hefur í mörg ár verið samstarf varðandi sjúkraliða í fjarnámi þar sem nemendur taka nám í öllum skólum. Samstarf er einnig milli Menntaskóla Ísafjarðar og Verkmenntaskóla Austurlands um meistaranám iðnsveina. Hér er því margt verið að gera en ég sé að tíminn er að rjúka. Þessar nýju hugmyndir varðandi framhaldsskólana eru í samráði. Þar er í rauninni ekki búið að taka neina ákvörðun. Niðurstaðan byggist á þeirri vinnu. Verðum við ekki að þora að taka þessa umræðu og horfa til þess að fara betur með fé, auka samvinnu, gera betur og auka þjónustuna?