157. löggjafarþing — 36. fundur,  20. nóv. 2025.

framhaldsskólar.

154. mál
[14:28]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta allsh.- og menntmn. (Sigurður Örn Hilmarsson) (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir andsvarið. Margt er hægt er að taka undir þar. Ég hygg til að mynda að þetta atriði varðandi ferilbókina og í raun þetta vinnustaðanám yfir höfuð sé verkefni sem verður fram haldið. Í kjördæmavikunni fórum við einmitt og heimsóttum verkmenntaskóla, fjölbrautaskóla, Borgarholtsskóla og aðra og heyrðum einmitt sjónarmið kennara, deildarstjóra og stjórnenda þar um að þar séu tækifæri til þess að reyna að gera betur. Þarna er líka auðvitað þetta samstarf í verknáminu milli stjórnenda skólans sjálfs og atvinnulífsins, iðnmeistara og annarra. Allt þarf þetta að virka saman og því þarf margt að nefna í því sambandi. Ég hlakka til að fylgjast áfram með því.

Við hv. þingmaður erum að sjálfsögðu sammála um að samstarf framhaldsskólanna sé af hinu góða. Ég tel að það sé umtalsvert nú þegar og finnst sjálfsagt að formgera það í lögum, nákvæmlega þessa heimild, sem mér finnst skynsamleg, sérstaklega vegna þess að forræðið er þarna hjá skólastjórnendum sjálfum. Það er það sem ég óttast varðandi svæðisskrifstofurnar, að ákvarðanir um rekstur, mannaráðningar, mannaforráð og annað verði teknar frá skólastjórnendum og færðar inn í þetta millistjórnsýslulag sem væri þá svæðisskrifstofur framhaldsskólanna.