framhaldsskólar.
Virðulegur forseti. Ég þakka svarið. Mig langar kannski að bæta því við varðandi samstarfið að það á líka við um bóknám. Til þess að litlu skólarnir fái nemendur líka er jafnvel verið að samnýta áfanga og veita nemendum inni í öðrum skólum svo hægt sé að halda brautum úti. Hvað varðar innritun nemenda og þær áhyggjur sem hér hafa komið fram yfir því að verið sé að loka á einhverja vissa hópa vil ég ítreka enn og aftur það sem hér hefur komið fram um að verið er að veita skólunum heimild; heimild til þess að horfa á fleiri þætti en bara námsárangur og það er mikilvægt. Þetta er aftur á móti staða sem snýr aðeins að skólum hér á höfuðborgarsvæðinu. Skólar úti á landi eru ekki með. Ég myndi heldur aldrei telja það lúxus að geta valið úr enda viljum við hafa fjölbreytileika. Það er gríðarlega mikilvægt.
Mig langar hins vegar að spyrja hv. þm. Sigurð Örn Hilmarsson að því hvort hann viti mörg dæmi þess að þetta hafi hamlað nemendum í að fá inngöngu í sinn skóla, að því gefnu að nemandinn standist einkunnir og námsskilyrði. Ef við snúum dæminu við og tökum dæmi af afburðanemanda sem veikist eða verður fyrir áföllum í lok 10. bekkjar og tekst ekki að uppfylla námsviðmið grunnskóla en nær svo tökum á aðstæðum; finnst hv. þingmanni rétt að þá sé bara skellt í lás á viðkomandi?