framhaldsskólar.
Frú forseti. Vissulega er það svo að í lífsins ólgusjó, eins og Smartlandið nefnir stundum, getur ýmislegt komið upp á. Auðvitað er það þannig að ungt fólk getur lent í áföllum í lífinu alveg eins og við fullorðna fólkið og það þarf auðvitað að taka á því. Ég held að það hljóti einfaldlega að vera tekið mið af þessu í rammanum kringum grunnskólanámið og að það sé auðvitað þannig.
Það sem ég hins vegar finn að og við bendum á í okkar umsögn er að námsárangur og þekking nemandans hljóta að vera útgangspunktur. Ég var spurður af hv. þingmanni hvort ég þekkti dæmi þess að þetta hafi verið vandamál og að sjálfsögðu er það raunin. Í grunninn snýr álit umboðsmanns Alþingis til að mynda að búsetunni. Vitanlega er óvíst hvort nemandi leitar inngöngu í sinn hverfisskóla; það geta verið tískubylgjur í þessu eins og öðru og framhaldsskólarnir eru misvinsælir á milli ára o.s.frv. Það að búsetan sem slík tengist hverfisskóla getur hins vegar gert það að verkum að fólk sem kannski elst upp hérna í miðbænum eða Vesturbænum eigi auðveldara með að komast inn í Menntaskólann í Reykjavík eða Kvennaskólann en fólk í Grafarvoginum. Það voru þessar reglur sem voru þar til umfjöllunar og vörðuðu sjálfa búsetuna. Umboðsmaður fann að því að þar vantaði skýrari lagastoð. Það er í raun og veru gagnrýnin sem við erum að benda á. Hún er tvíþætt. Í fyrsta lagi að það sé áhættusamt að líta til fleiri þátta því það auki líkurnar á beitingu geðþóttavalds. Það sem mér finnst þó hættulegast er að litið sé út fyrir hagsmuni nemandans sjálfs. Einstaklingnum er einfaldlega fórnað vegna þess að betra sé, að mati einhverra, að nemendahópurinn sé öðruvísi samsettur, sem sagt ekki með þessum nemanda sem annars kæmist inn í sinn draumaframhaldsskóla.