157. löggjafarþing — 36. fundur,  20. nóv. 2025.

framhaldsskólar.

154. mál
[14:48]
Horfa

Frsm. meiri hluta allsh.- og menntmn. (Víðir Reynisson) (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni Snorra Mássyni fyrir andsvarið. Já, þarna greinir okkur kannski pínulítið á í þessu grundvallaratriði þegar kemur að fjölbreytileikanum. Ég tel einmitt að það sé gríðarlega mikilvægt að við öxlum öll ábyrgð á fjölbreytileikanum, alls staðar í samfélaginu, því að þannig búum við til betra samfélag. Framhaldsskólarnir eru ekkert undanskildir í því. Kannski er ekki þörf á því að setja einhverjar stífar reglur um þetta en þarna er alla vega verið að skýra heimild í lögum um að skólarnir geti gert þetta með þessum hætti. Í bæði greinargerðinni og áliti meiri hlutans eru skólarnir einmitt hvattir til þess að taka stöðu með fjölbreytileikanum og það hafa langflestir skólar á landinu gert. Það eru flestallir skólar farnir að vera með starfsbrautir og annað.

Aftur: Ég virði það við hv. þingmann Snorra Másson að hann brennur fyrir málefnum en aftur notaði hann kannski orðfæri sem ég get ekki verið sammála þegar hann talar um verri nemendur. Við erum bara með mismunandi nemendur. Sem betur fer erum við ekki öll eins og það er mikilvægt að skólarnir hafi fast land undir fótum þegar þeir setja kynjakvóta, þegar þeir setja aðrar kröfur en um námsárangurinn sem er mældur í einhverjum einkunnum eða bókstöfum, heldur geti skólarnir líka sett kröfur eða reglur sem snúa að því að taka inn nemendur sem auðga það námsstarf sem fram fer í skólanum.