157. löggjafarþing — 36. fundur,  20. nóv. 2025.

framhaldsskólar.

154. mál
[14:52]
Horfa

Eydís Ásbjörnsdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Fjölbreytileikinn — ég fagna honum og mikið vildi ég að hv. þm. Snorri Másson myndi sjá ljósið. Ég held að lífið yrði miklu léttara. Þetta þekkjum við úti á landi af því að alast þar upp og vera þar í skóla. Þar eru allir velkomnir og framhaldsskólar úti á landi hafa langa og góða reynslu af slíku. Þar eru góðir skólar.

Ég er alltaf til í að taka þetta samtal en við hljótum að vilja að öll ungmenni fari í framhaldsnám. Það eru breyttir tímar frá því fyrir 20 eða 30 árum þegar margir fóru bara út á vinnumarkaðinn. Ég átta mig ekki á því hvert vandamálið hér í raun er. Þetta er heimild sem skólar fá fyrir innritun. Mig langar að ítreka spurningu sem ég kom með áðan, hvort hv. þingmaður viti um mörg mál þar sem nemendum hefur verið hafnað á kostnað annarra. Hefur hann áhyggjur af því að þessi heimild muni breyta stöðunni eitthvað umfram það sem nú er?