157. löggjafarþing — 36. fundur,  20. nóv. 2025.

almannatryggingar og heilbrigðisþjónusta.

269. mál
[15:04]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Inga Sæland) (Flf):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar og lögum um heilbrigðisþjónustu. Í þessu frumvarpi er kveðið á um mikilvægar breytingar til að bæta stöðu ellilífeyrisþega í samræmi við yfirlýst markmið í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar. Frumvarp þetta mælir fyrir um að almennt frítekjumark ellilífeyris skuli hækka í skrefum næstu þrjú árin þannig að það nær tvöfaldast á þessu kjörtímabili.

Við í Flokki fólksins höfum lengi barist fyrir því að dregið verði úr skerðingum ellilífeyris og þessi breyting er mikilvægt skref í þá átt að tryggja eldri borgurum mannsæmandi framfærslu og áhyggjulaust ævikvöld. Við lögðum áherslu á það við stjórnarmyndun að eldri borgarar fengju raunverulegar kjarabætur og er þessi aðgerð hluti af þeirri vegferð en til viðbótar má nefna frumvarp mitt um að tengja ellilífeyri við launavísitölu. Hið almenna frítekjumark sem ég legg til í frumvarpi þessu að verði hækkað nær til allra tekna eldri borgara, annarra en atvinnutekna, og hækkun frítekjumarks mun skila tekjuaukningu til mikils meiri hluta eldra fólks.

Önnur breyting sem lögð er til í frumvarpi þessu er sú að aldursviðbót vegna örorku haldist ævilangt. Það þýðir að þeir ellilífeyrisþegar sem eiga engin eða mjög takmörkuð lífeyrisréttindi vegna þess að þeir voru ungir metnir til örorku munu áfram njóta aldursviðbótarinnar nái frumvarpið fram að ganga. Þetta getur skipt sköpum fyrir öryrkja sem á einni nóttu, á 67 ára afmælisnóttinni, misstu þessi réttindi þegar þeir hófu töku ellilífeyris. Um er að ræða greiðsluflokk sem skilar tekjuaukningu til þeirra ellilífeyrisþega sem hafa minnstar tekjur fyrir og því er um mjög mikið réttlætismál að ræða. Fyrir þá sem hafa verið öryrkjar frá unga aldri getur þarna munað allt að 30 þúsund kr. á mánuði í tekjuaukningu.

Það hefur alltaf verið baráttumál Flokks fólksins að þegar öryrki gengur yfir þann þröskuld að verða skilgreindur sem ellilífeyrisþegi, að í stað þess að stórlækka í framfærslu þá fái hann að halda aldursviðbótinni sem hann áður hafði sem öryrki. Því er það mikið ánægjuefni að ekki stóð á samstarfsvilja samstarfsflokka okkar í ríkisstjórn að láta þetta réttlætismál ná fram að ganga. Rétt er að benda á að aldursviðbótin tekur mið af nýju almannatryggingakerfi sem tók gildi þann 1. september síðastliðinn.

Forseti. Til viðbótar við þær mikilvægu breytingar sem ég hef farið hér yfir og ætlað er að styrkja fjárhagslega stöðu eldra fólks eru lagðar til tvær aðrar breytingar. Lagt er til að Tryggingastofnun, TR, starfræki upplýsingakerfi samhæfingarteyma í þeim tilgangi að skipuleggja fyrirtöku og afgreiðslu mála. Þá er lagt til að TR haldi skrá á landsvísu með upplýsingum frá þjónustuaðilum og aðilum sem veita þjónustu í umboði þjónustuaðila í tengslum við framvindu viðurkenndrar meðferðar og endurhæfingar einstaklinga. Skránni er ætlað að tryggja nauðsynlega yfirsýn og stuðla að samfellu í þjónustu og greiðslum. Með öðrum orðum er breytingunni ætlað að tryggja að haldið sé utan um þessar upplýsingar og þannig stuðlað að því að þær nýtist einstaklingum svo að þeir megi fá endurhæfingarþjónustu við hæfi á réttum stað og á réttum tíma. Auk þess er tilgangur skrárinnar að afla tölfræðilegra upplýsinga til að stuðla að gæðaþróun og gagnadrifinni stefnumótun í tengslum við endurhæfingu. Persónuauðkenni í skránni verða dulkóðuð til að tryggja persónuvernd. Loks er lagt til að ákvæði í lögum um almannatryggingar um stjórn Tryggingastofnunar verði felld brott. Stjórnir stofnana sem heyra beint undir ráðherra þykja almennt hafa óljósa stöðu og hlutverk og bent hefur verið á að hætta sé á óljósum ábyrgðarskilum stjórnar og forstöðumanna stofnana. Þá hefur í stjórnsýsluúttektum Ríkisendurskoðunar á stofnunum sem heyra undir yfirstjórn ráðherra reglulega komið fram athugasemdir við skipan slíkra stjórna á þeim grundvelli að stjórnskipuleg staða þeirra sé oft ekki nógu skýr. Þess vegna er lagt til að fella ákvæði þetta brott um stjórnina úr lögum um almannatryggingar.

Virðulegi forseti. Frumvarpið er í samræmi við stjórnarskrá lýðveldisins Íslands og alþjóðlegar skuldbindingar á sviði félagslegra réttinda. Þannig er hækkun almenns frítekjumarks ellilífeyrisþega og ævilöng aldursviðbót breytingar í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar sem boðar aðgerðir til að uppræta fátækt og lyfta greiðslum almannatrygginga til tekjulægri lífeyrisþega. Með frumvarpinu eru stigin mikilvæg skref í átt að réttlátara samfélagi. Þeirri vegferð er þó ekki nándar nærri lokið og munum við halda ótrauð áfram í baráttunni gegn fátækt.

Forseti. Að lokinni þessari umræðu legg ég til að frumvarpinu verði vísað til hv. velferðarnefndar.