157. löggjafarþing — 37. fundur,  24. nóv. 2025.

verndartollar ESB á kísiljárn.

[15:03]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Ákvörðun Evrópusambandsins um verndartolla á kísiljárn frá Íslandi og Noregi er ekki einungis stórt mál fyrir íslenskt atvinnulíf heldur prófsteinn á það hvort EES-samningurinn verji okkur í raun. Forseti framkvæmdastjórnar ESB, Ursula von der Leyen, hefur samkvæmt fréttaflutningi verið helsti hvatamaður þess að setja þessa tolla á til að verja u.þ.b. 1.800 störf innan ESB. Sama Ursula hringir svo í hæstv. forsætisráðherra Íslands og fullvissar hana um að þetta sé einstakt tilvik, ekki fordæmisgefandi og snúist ekki um EES-samninginn.

Virðulegi forseti. Við vitum öll að loforð í símtali breyta hvorki texta EES-samningsins né réttarstöðu Íslands á innri markaðnum. Forseti framkvæmdastjórnar ESB, Ursula von der Leyen, er ekki dómstóll, Ursula er ekki sameiginlega EES-nefndin og Ursula er ekki löggjafi í EES-rétti. Hún hefur enga heimild til að binda hendur aðildarríkjanna, enga heimild til að útiloka að sambærileg ákvörðun verið tekin aftur og Ursula hefur enga heimild til að ákveða hvað telst fordæmisgefandi í alþjóðlegum rétti. Hvað ef eftirmaður Ursulu von der Leyen verður á annarri skoðun? Það er því einfaldlega óraunhæft og í raun ábyrgðarlaust að selja símtal við helsta hvatamann tollanna sem einhvers konar öryggistryggingu fyrir stöðu Íslands á innri markaði. Ég spyr því hæstv. forsætisráðherra einfaldlega: Hvaða merkingu tekur hún úr þessu símtali og hvernig getur hún treyst þessum fullyrðingum?