157. löggjafarþing — 37. fundur,  24. nóv. 2025.

aðgerðir í húsnæðismálum.

[15:18]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F):

Hæstv. forseti. Fyrir um mánuði síðan kynnti ríkisstjórnin fyrsta húsnæðispakkann. Þá sagði hæstv. forsætisráðherra að þetta sýndi að ríkisstjórnin bæði þyrði og framkvæmdi: „Við erum að ganga í verkin og grípa til aðgerða sem hefur verið talað um svo árum skiptir.“ Sami hæstv. forsætisráðherra sagði fyrir mánuði: „Ef það þarf að gera meira hraðar, þá gerum við meira hraðar“, sagði sami hæstv. forsætisráðherra fyrir mánuði. Félags- og húsnæðismálaráðherra taldi aðgerðir ríkisstjórnarinnar stuðla að uppbyggingu fleiri íbúða og að sanngjarnara húsnæðis- og leiguverði í landinu.

Mig langar að spyrja hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra út í hlutdeildarlánin, en það var kynnt til sögunnar að það ætti að breyta þeim. Það átti að hækka framlög úr 4 milljörðum í 5,5. Við höfum ekki séð það hér í þinginu. Það átti að úthluta í hverjum mánuði. Við höfum ekki séð neinar breytingar á því, engar aðgerðir, engar framkvæmdir, ekki meira og ekki hraðar. Það átti að gera samning milli stjórnvalda og byggingaraðila um að byggja hagkvæmar íbúðir inn í kerfið og það átti að rýmka lántökuskilyrðin til þess að fleiri ættu þess kost. Nú spyr ég, mánuði eftir að fyrsti húsnæðispakkinn var kynntur með öllum þeim flugeldasýningum um meira og hraðar, aðgerðir og framkvæmdir: Er ekkert að frétta? Hver er staðan og af hverju er ekkert að frétta? Er ágreiningur í ríkisstjórninni um að klára málið með þessum hætti? Eru vandræði við að reyna að skila hallalausum fjárlögum 2027 að valda því að ekki sé hægt að ganga til framkvæmda, koma húsnæðismarkaðinum í gang, gera meira og gera hraðar, hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra? Hver er staðan?