aðgerðir í húsnæðismálum.
Virðulegur forseti. Því meira sem maður heyrir af þessari samheldni og gleði því minna trúir maður nú á hana, satt best að segja. Það er betra að sýna það í verki. Ég spurði hvenær. Hvenær hækka framlögin? Hvenær er samningurinn gerður og hvernig verður hann milli ríkisins og byggingaraðila? Ég spurði líka fyrir hverju eigi að rýmka. Hverjir fleiri eiga að komast inn í hlutdeildarlánin? Hvaða áhrif hefur það á markaðinn í heild sinni?
Mig langar líka að spyrja, það voru fleiri tillögur um tiltekt í stjórnsýslu: Hvernig styrkir það HMS að taka tugmilljarða af eignum Húsnæðissjóðs og selja? Ég skil það, það er verið að lækka skuldir ríkissjóðs, það getur verið skynsamlegt, en hvernig styrkir það HMS til að mynda að standa við Tryggða byggð sem hefur verið gríðarlega jákvætt verkefni hringinn í kringum landið og komið mörgum húsnæðisuppbyggingarverkefnum af stað?
Svo langar mig að lokum að spyrja hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra hraðaspurningar: Stórfelld einföldun á regluverki byggingarreglugerðar — hvaða ákvæði nákvæmlega í nýrri byggingarreglugerð munu lækka byggingarkostnað?