aðgerðir í húsnæðismálum.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðari fyrirspurn. Það þarf fátt að koma sérstaklega á óvart þegar við erum að takast á við svona stór verkefni sem voru alltaf í skrúfunni hjá fyrri ríkisstjórn. Þó svo að það hafi verið góður vilji þá náði fyrri ríkisstjórn því miður ekki að festa hlutdeildarlánin í sessi. Við fengum það verkefni í fangið og erum að vinna það vel. Það sem hins vegar hefur verið meiri áskorun fyrir okkur núna eru þessi svokölluðu stofnframlög sem eiga að verða til þess að óhagnaðardrifnu leigufélögin okkar geti í raun byggt meira og hraðar. Það hefur verið skortur á lóðum frá sveitarfélögunum. Sá skortur heyrir um það bil sögunni til. Í rauninni er mjög gott samstarf þessarar ríkisstjórnar við sveitarfélögin í landinu vegna þess að svo einkennilegt sem það er þá höfum við ákveðið að líta á landið okkar sem eina stóra heild, eitt Ísland, þar sem við störfum af hug og hjarta með sveitarfélögunum. Við höfum tekið á okkur margar byrðar þeirra og þung verkefni til þess að létta undir með þeim og það munum við gera til framtíðar. Ég segi því bara: Hér er bjartsýn og brosandi (Forseti hringir.) ríkisstjórn á ferðinni og ég hvet hv. þingmann til að vera með okkur í liðinu og gleðjast.