Staða hafrannsókna.
Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni og málshefjanda, Sigurjóni Þórðarsyni, fyrir að hefja þessa umræðu og sömuleiðis hæstv. atvinnuvegaráðherra fyrir að vera hér og taka þátt í þessari mikilvægu umræðu. Hv. þingmaður ber hér upp einar fjórar spurningar sem eru áhugaverðar og mér finnst mjög vert að horfa til. Hér erum við að ræða um stofnun sem hefur gegnt mikilvægu hlutverki í gegnum tíðina og við höfum horft til og það er alveg ljóst í mínum huga að störf allra, sama hverjir eiga í hlut, eiga að þola gagnrýni. Sömuleiðis held ég að gagnrýnin leiði til þess að við náum betri árangri. Það á einnig við um Hafrannsóknastofnun en hlutverk stofnunarinnar er mikið og þar er til mikið af gögnum. Í gögnunum eru greiningar á lífríki hafsins og fiskstofnum Íslands í gegnum tíðina og gríðarlegur talnagrunnur sem á því byggist. Samt sem áður erum við að horfa til þess að það er alltaf verið að gagnrýna í hvert einasta skipti sem ráðgjöfin kemur fram. Við byggjum líka á umsögnum þeirra sem nýta auðlindina sömuleiðis, hvað hefur áunnist og hvernig við sjáum framtíðina fyrir okkur varðandi þessa mikilvægu auðlind sem við höfum hingað til byggt alla okkar hagsæld á.
Virðulegur forseti, mér sýnist tíminn vera búinn. Ég kem bara aftur, held ég, en gott í bili.