157. löggjafarþing — 37. fundur,  24. nóv. 2025.

Staða hafrannsókna.

[16:03]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurjóni Þórðarsyni fyrir að hefja máls á hafrannsóknum við Íslandsstrendur. Það er að mörgu að huga og það er svo sem ekki ný umræða að ræða hafrannsóknir og við vitum að það hafa verið uppi margar kenningar og alls kyns kenningar um það hvernig hafrannsóknir ættu að vera. Það eru hugmyndir uppi um að það væri hægt að veiða meira en 100.000 tonn í viðbót o.s.frv. Hinn gamli flokkur hv. þm. Sigurjóns Þórðarsonar, Frjálslyndi flokkurinn, sem hann var þingmaður fyrir einu sinni, hafði mjög háar og miklar hugmyndir um það hvernig fiskveiðistjórnarkerfið ætti að vera og gaf lítið fyrir vísindi Hafrannsóknastofnunar. En það er nú bara þannig að við megum ekki gleyma því að síldin hvarf ekki á sínum tíma. Síldarstofninn hrundi. Þegar við tölum um að síldin hafi horfið þá hrundi hún. Veiðar á þorski við Miklabanka hrundu líka upp úr 1990 við Kanada, milljón tonn sem voru veidd á ári, svo bara hrundi stofninn og hefur ekki enn þá tekið við sér. Þegar kemur að hafrannsóknum og ráðgjöf í kvótum verðum við að sýna ákveðna varfærni. Tilraunastarfsemi af ýmsu tagi, hugdettur hinna og þessara sem vilja gera tilraunir með eitthvað — ég velti því fyrir mér hvort við höfum efni á því að fara í slíka tilraunastarfsemi af því að við höfum fordæmi fyrir framan okkur um hvað gerist þegar við förum ekki að ráðgjöfinni og göngum of hart á stofnana. Ég get alveg tekið undir það að auðvitað er ekkert hafið yfir gagnrýni og það á að vera vísindaleg rýni á ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar af öðrum vísindastofnunum ef menn vilja fara í það. Það er náttúrlega gert af ICES, Alþjóðahafrannsóknaráðinu, líka. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að vekja athygli á þessu máli og tvær mínútur, eins og fram hefur komið, eru allt of stuttur tími til að ræða þetta mál yfir höfuð. En við höfum vítin til að varast þau og við höfum fyrir framan okkur þau mistök sem við höfum gert á áratugunum á undan. (Forseti hringir.) Við vorum næstum því búin að klára hér þorskstofninn, svarta skýrslan ýtti okkur í rauninni út í það að við tókum upp kvótakerfið og síðan frjálsa framsalið 1991, sem hefur þó tryggt það að við höfum reynt að verja (Forseti hringir.) þorskstofninn og aðra stofna með sjálfbærum og ábyrgum veiðum og það hefur verið eitt helsta aðalsmerki okkar Íslendinga.