Staða hafrannsókna.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka fyrirspyrjanda, hv. þm. Sigurjóni Þórðarsyni, fyrir að vekja máls á þessu mikilvæga máli og ekki síst hæstv. ráðherra fyrir hennar góðu ræðu. Ég vil líka þakka þeim þingmönnum sem hafa tekið hér þátt fyrir góða innkomu og góðar upplýsingar um þeirra sýn á þetta mikilvæga mál.
Fiskstofnarnir á Íslandsmiðum eru ein mikilvægasta auðlind Íslendinga og hana verðum við að vernda og passa upp á. Við erum auðvitað í fararbroddi, Íslendingar, þegar kemur að hafrannsóknum. Við höfum stundað skipulagðar hafrannsóknir frá 1931. Það var fyrir tilstilli Bjarna Sæmundssonar fiskifræðings. Ég er nú slordís að vestan, svo það sé sagt, og svo lengi sem ég hef munað eftir mér þá hefur verið talað um veiðiráðgjöf Hafró, að hún standist ekki, allt sé hér yfirfullt af fiski í sjónum en sérfræðingarnir frá Hafró sjái það ekki og það sé eitthvert gat þarna á milli í umræðunni og það er nú bara eins og það er. Ég vil samt segja að á Hafrannsóknastofnun er ofboðslega mikið af góðu fólki og eins og ráðherra fór yfir áðan þá er auðvitað verið að leita álits víða. En við erum auðvitað oft ekki ánægð með ráðgjöfina og það eru margir þættir sem koma til. Það geta verið bara loftslagsmálin eins og hv. þm. Eydís Ásbjörnsdóttir fór yfir áðan, stækkandi hvalastofn og svo fleira og fleira sem kemur þarna inn í sem þarf að skoða. En ég vil bara nefna hér, svo ég sé ekki að endurtaka orð annarra þingmanna, að mér fannst þessar hugmyndir hv. þingmanns allrar athygli verðar, að skoða nýsköpun á ákveðnum svæðum, til að mynda varðandi ýsuna í Ísafjarðardjúpi og hvort aukin veiði á ýsu muni auka við rækjuveiði. Mér finnst þetta bara mjög áhugavert en ég vil bara leggja á það áherslu að það sé gert á vísindalegum grunni og með vísindamönnum. Ég tel að það sé rými til að skoða nýjar leiðir í þessu máli en ég vil enn og aftur þakka fyrir þessa góðu umræðu.