Staða hafrannsókna.
Virðulegur forseti. Ég held að það sem hefur komið fram, bæði hjá upphafsmanni þessarar umræðu og fleirum hér síðan, sé mikilvægi þess að við höfum í huga að við ætlum að hámarka afrakstur fiskveiðiauðlindarinnar. Það gerum við m.a. með auknum rannsóknum. Ég held að það eigi allir að sitja undir hæfilegum skammti af gagnrýni á sín störf sem vinna að jafn mikilvægu rannsóknarverkefni og Hafrannsóknastofnun. Ég ítreka að ég fagna þeim orðum hæstv. ráðherra að ráðherrann sjái fyrir sér að efla Hafrannsóknastofnun. Ég held að það sé í öllu falli þannig að við þurfum að finna svigrúm og bæta í hvað rannsóknir varðar til að auka hér hagsæld til framtíðar. Það er bara partur af þeirri heildarmynd sem skiptir svo miklu máli. Það mun sömuleiðis undirbyggja enn frekar sterka stöðu okkar á vel borgandi mörkuðum og þar fram eftir götunum. Við sjáum bara skynsamlega framsettar umsagnir núna í svokölluðu grásleppufrumvarpi þar sem verið er að leggja til að grásleppan verði tekin úr kvóta, út úr aflamarkskerfinu. Megináhyggjur sem lúta að öðru en mögulegri skaðabótaskyldu stjórnvalda og atvinnuréttarsjónarmiðum eru þær er varða MSC-vottunina. Það er auðvitað hlutur sem verður að horfa til í öllu samhengi fiskveiðistjórnar, þ.e. að staða okkar sé, ef eitthvað er, sterkari hér eftir en hingað til hvað varðar það að nálgast þessa fiskveiðiráðgjöf alla með áherslu á sjálfbærni og skynsamlega nýtingu, því að það skilar okkur mestum arði sem samfélagi til langrar framtíðar.