157. löggjafarþing — 37. fundur,  24. nóv. 2025.

Staða hafrannsókna.

[16:15]
Horfa

atvinnuvegaráðherra (Hanna Katrín Friðriksson) (V):

Herra forseti. Aftur þakka ég hv. málshefjanda fyrir að koma þessari umræðu á laggirnar og þeim þingmönnum sem hafa tekið þátt. Það er alveg ljóst að rauði þráðurinn hér í máli fólks er að við þurfum að finna einhvern flöt á því að ræða þessi mál af meiri dýpt og gefa okkur tíma. Það er kannski verkefnið að finna út úr því hvernig það er best gert af því að það er alveg rétt sem kemur fram í máli allra að þau gerast ekki stærri hagsmunamálin fyrir íslenskt samfélag og þau þarf að vinna vel. Ég er þakklát fyrir þann mikla stuðning sem ég fæ hér við það verkefni að efla hafrannsóknirnar, efla Hafrannsóknastofnun og búa svo um hnútana að við séum með bestu fáanlegu tæki og tól í höndunum þegar við rannsökum nytjastofna okkar og finnum út úr því hvernig við getum skapað verðmæti úr þeim til skemmri og lengri tíma fyrir samfélagið.

Hv. þm. Sigurjón Þórðarson er með mjög marga athyglisverða punkta sem mér tekst ekki á þeim stutta tíma sem ég hef að fara yfir, ég held að við séum bara rétt að drepa á þessu hér og munum halda þessu samtali áfram. Það komu fleiri inn á þessi atriði sem hann nefndi í framsöguræðu sinni og spurninguna um mikilvægi nýsköpunar. Það er alveg rétt, það er auðvitað mjög eðlilegt og áhugavert að skoða einhverja slíka nýsköpun á ákveðnum svæðum en það er mikilvægt að til hennar sé efnt með vísindalegri nálgun og við séum alltaf með þessar hafrannsóknir okkar í forgrunni.

Mig langaði að nefna eitt sem ég kom ekki að áðan og það er hluti af vinnu við endurskoðun á aflareglu þorsks sem kominn er tími á eins og ég sagði. Það mætti athuga þróun síðustu ára, hvort hún hefði leitt til breyttrar niðurstöðu varðandi arðsemi og veiðihlutfall af því að þetta er auðvitað ekki yfir gagnrýni hafið. (Forseti hringir.) Lykilatriðið er að það sé vísindaleg nálgun, að við búum þannig um okkar Hafrannsóknastofnun að hún sé sem best í stakk búin til að gera þetta vel og vandlega. Við deilum öll hinum sameiginlegu markmiðum. (Forseti hringir.)

Mig langar til að þakka þessa umræðu og þakka fyrir marga gagnlega punkta. Ég undirstrika mikilvægi þess að við byggjum veiðar á Íslandsmiðum á vandaðri gagnasöfnun, rannsóknum og greiningum, svo að ákvarðanir sem við tökum um aflaheimildir séu byggðar á bestu fáanlegu vísindum. Það er það mikilvægasta fyrir samfélag okkar.