evrópskir langtímafjárfestingarsjóðir.
Virðulegi forseti. Þetta mál var á dagskrá degi eftir eða sama dag og umdeild ákvörðun Evrópusambandsins var tekin um að leggja tolla á Ísland og brjóta þannig gróflega á EES-samningnum. Það var, má segja, með miklum ólíkindum að ríkisstjórnin hafi látið sér detta í hug að koma með þetta mál þann dag og menn sátu hjá í því ljósi. Þær aðstæður hafa ekkert breyst nema menn hafa kannski bitið höfuðið af skömminni með útskýringu og einhvers konar réttlætingu á aðgerðum Evrópusambandsins gagnvart Íslandi í þessum efnum. Ég held að það sé til umhugsunar fyrir Alþingi að hér skuli eiga að streyma inn málin bara jafnt og þétt eins og ekkert hafi í skorist, mál sem verða innleidd hér, mál eins og þetta sem hefur nákvæmlega ekkert með íslenskar aðstæður að gera, nákvæmlega ekkert, í stað þess að, eins og mönnum er tamt að segja, anda ofan í kviðinn og hugleiða aðeins stöðuna í þessum efnum. Það liggur ekkert á í þessum efnum og það er án þess að verið sé að raska EES-samningnum meira en Evrópusambandið sjálft hefur verið gert.