kirkjugarðar, greftrun og líkbrennsla.
Virðulegur forseti. Ég kem hér upp undir þessu máli til að þakka nefndinni fyrir góða vinnu við gerð þessa máls. Þetta er að öllu leyti gott mál sem allir styðja og kemur mér að vissu leyti á óvart að hér við atkvæðagreiðslu í 2. umræðu komi upp þingmenn sem eru annaðhvort með einhvers konar Morfís-leikrit varðandi skatta á hina dauðu eða hreinlega gera lítið úr þeirri stöðu að við þurfum að tryggja rekstur líkhúsa og kirkjugarða úti um allt land. Ábyrg stjórnvöld standa fyrir slíku, óábyrgir stjórnmálamenn gera lítið úr slíku. Það er uppi sú staða að við þurfum að bæta þarna vel í og eðlilegt að innheimt sé gjald fyrir þessa þjónustu til að geta byggt hana upp og tryggt gæði hennar. Það er líka að færast í aukana að fólk er að fresta jarðarförum lengur og lengur heldur en áður var og því eðlilegt, ef fjölskyldan ákveður að fresta jarðarför vegna þess að ættingjar eru t.d. staddir erlendis, til að sameina fjölskylduna, að það sé þá bara tekið gjald af því og fólk getur þá einfaldlega greitt fyrir það. Þetta er gott og eðlilegt mál.