157. löggjafarþing — 37. fundur,  24. nóv. 2025.

kirkjugarðar, greftrun og líkbrennsla.

113. mál
[16:29]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Það er ómerkilegur málflutningur hér að ýja að því að þeir þingmenn sem koma og gera athugasemdir við það að hér sé lagður á nýr sérstakur skattur í opinberum rekstri sem hefur verið með fjárheimildir á fjárlögum séu óábyrgir þingmenn eða að þetta sé óábyrgur málflutningur. Það er auðvitað ekki þannig. Auðvitað vilja þingmenn hér að þessi rekstur standi undir sér. Það eru hins vegar aðrar leiðir til þess og hafi menn viljað vera ábyrgir þá hafa þeir getað brugðist við slíkri vöntun á fjárheimildum til þessara starfa.

Hitt er svo annað mál, af því að hér er nefnt að þetta mál er samtvinnað öðru alls óskyldu, að það er orðinn plagsiður hér að frumvörp komi fram trekk í trekk sem varða alls óskyld málefni. Miðflokkurinn í sjálfu sér styður þá tillögu sem lögð er til um tímalengd grafreita, það kemur bara ekkert fjárheimildum við. Það er afleitt að hér skuli vera búið þannig um að eðlisólík mál séu spyrt svona saman.