kirkjugarðar, greftrun og líkbrennsla.
Frú forseti. Þetta mál, eins og komið hefur fram hér, kemur til vegna slæmrar rekstrarstöðu líkhúsa á Akureyri og í Reykjavík og hafa þau kallað eftir því að fá að taka geymslugjald þar sem aðstandendur hafa oft frestað því að jarðsetja viðkomandi ástvin. Hins vegar er rekstrarsamningur við kirkjugarðana varðandi töku grafa og einnig um umhirðu á leiðum. En líkgeymslur hafa ekki verið þar undir, þ.e. í samningunum, og hefur verið kallað eftir því. Við í þingflokki Framsóknar styðjum að þetta mál verði samþykkt hér í dag en við viljum líka brýna hæstv. dómsmálaráðherra í því að fara í heildarendurskoðun á þessum lögum og einmitt þá líka að endurskoða samninga við kirkjugarða þannig að hægt sé að taka þetta inn í heildarsamningana svo að allt sé þar undir og þá væri m.a. hægt að taka þetta gjald.