157. löggjafarþing — 37. fundur,  24. nóv. 2025.

kirkjugarðar, greftrun og líkbrennsla.

113. mál
[16:36]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Ég kem hér upp til að gera athugasemdir við það hvernig búið er um hnútana í þessu frumvarpi. Þetta er svona eins og að eiga að greiða atkvæði um til að mynda reglur í akstursíþróttum annars vegar og svo skíðaíþróttum hins vegar; hér eru tvö algerlega óskyld mál undir. Ég hefði gjarnan viljað geta stutt hæstv. ráðherra varðandi 2. gr., sem varðar það að geyma grafarstæði. Ég skil alveg hvaðan hæstv. ráðherra er að koma í þeim efnum. Hitt er auðvitað vanbúið og hefði mátt fá umtalsvert betri umfjöllun hér. En aðalatriðið af minni hálfu er að það er ekki hægt að taka afstöðu til þessara tveggja mála í sömu atkvæðagreiðslunni. Ég held meira að segja að fulltrúar meiri hlutans hér í salnum séu sammála okkur í því.