157. löggjafarþing — 37. fundur,  24. nóv. 2025.

framhaldsskólar.

154. mál
[16:42]
Horfa

Guðmundur Ari Sigurjónsson (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Hér er um eins konar tiltektarmál að ræða varðandi framhaldsskólana. Hér eru margar breytingar sem snúa allar að því að styrkja og efla framhaldsskóla landsins. Hér væri hægt að taka fram margar greinar en ég vil aðeins koma inn á það sem hefur verið nefnt nú þegar, t.d. varðandi það að ekki sé lengur litið til námsárangurs. Það er einfaldlega ekki rétt. Staðan í framhaldsskólanum í dag er þannig að litið er til fjölbreyttra þátta við inntöku nemenda í framhaldsskóla. Í áliti umboðsmanns Alþingis frá 2010 ályktaði hann að það skorti skýra lagaheimild um til hvaða þátta mætti líta. Tökum nokkur dæmi. Þú ert með framhaldsskóla með íþróttafræðibraut. Hefur sá framhaldsskóli leyfi til að horfa til virkni einstaklings í íþróttum eða getu? Við erum með starfsbrautir í framhaldsskólum, það eru tekin inn börn með fatlanir. Hefur framhaldsskólinn heimild til að líta til þeirra þátta við inntöku eða á bara að horfa á einkunnir? Það er því verið að veita í þessu frumvarpi heimild fyrir skólameistara (Forseti hringir.) að líta til fleiri þátta þegar skólinn telur að það sé mikilvægt. Þetta er mjög mikilvægt og gott mál.