157. löggjafarþing — 37. fundur,  24. nóv. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna einföldunar og samræmingar leyfisferla á sviði umhverfis- og orkumála.

265. mál
[17:12]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna. Hæstv. ráðherra segir að þetta frumvarp sé til þess fallið að einfalda leyfisveitingar og auka skilvirkni í stjórnsýslu og svoleiðis. Það er jafnframt markmið að auka samræmingu við EES-rétt. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra hvað það er nákvæmlega í frumvarpinu sem er áætlað að falli að þessari auknu samræmingu, ef hann gæti tilgreint greinarnar á eftir og farið að einhverju leyti yfir það. Þetta er náttúrlega líka umtalsverð breyting frá fyrra frumvarpi, það er ýmislegt nýtt í þessu. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra í þessu fyrra andsvari út í 25. gr., um bann við notkun tannsilfurs til viðgerða á tönnum, hún verður óheimil ef þetta verður að lögum nema tannlæknir telji slíka notkun nauðsynlega. Í greinargerð er vísað í að breytingin sé í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins. Þá hlýtur maður náttúrlega að spyrja, því það segir hérna líka að planið sé að þessu verði alfarið hætt 2030: Er þetta vegna þess að þetta er heilsuspillandi? Hvað með þá fjölmörgu sem eru með silfur í tönnum? Eru einhverjar áætlanir um að liðka fyrir, ef þetta er heilsuspillandi, að slíkt verði fjarlægt úr tönnum fólks og ríkið taki þá þátt í þeim kostnaði (Forseti hringir.) eða hvers vegna er verið að gera þetta? Hvers vegna er þetta hérna inni?