157. löggjafarþing — 37. fundur,  24. nóv. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna einföldunar og samræmingar leyfisferla á sviði umhverfis- og orkumála.

265. mál
[17:21]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, fyrir framsöguna. Hér er á ferðinni gamall kunningi, mál sem við vorum að glíma við á síðasta þingi og náði því miður ekki fram að ganga. Þetta er alveg ótrúlega fjölbreytt frumvarp, svo maður segi það nú bara hreinlega. Hér er í rauninni verið að tala um 12 kafla eða 12 mismunandi lagabálka og það er ekki hægt annað en að vera glaður með það að okkur skuli þá mögulega takast að einfalda regluverkið sem því nemur. Við þekkjum það nú af t.d. bara þessum virkjunarkostum sem við höfum verið að glíma við núna í tengslum við umfjöllun um rammann, að þetta er alveg ótrúlegur fjöldi leyfa sem þarf að ná í gegn eftir að það hefur verið ákveðið að virkja. Þegar það hefur verið samþykkt á eftir að vinna með mjög mörg leyfi og ekkert öruggt í þeim efnum, að það náist að virkja á endanum. En einföldun á regluverki myndi alla vega hraða niðurstöðu í því máli. Mig langar til að spyrja hæstv. ráðherra hvort hann telji sig vel á veg kominn eða hvort við eigum töluvert mikið eftir áður en við náum þeirri stöðu að geta verið með svokallaða „one stop shop“, þ.e. að við getum tínt til nær öll þau atriði sem þurfa að liggja til grundvallar þegar leyfi er veitt. Hefur ráðherrann tilfinningu fyrir því að við séum komin vel áleiðis eða eigum við langt í land að hans mati?