157. löggjafarþing — 37. fundur,  24. nóv. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna einföldunar og samræmingar leyfisferla á sviði umhverfis- og orkumála.

265. mál
[17:31]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra orkumála fyrir að hafa farið yfir þetta mál hér í dag, mál eða frumvarp sem hefur margt mikilvægt í för með sér. Það þarf að efla skýrleika, sérstaklega núna. Við erum að sameina stofnanir og það er vel að það sé verið að horfa á það sem hæstv. ráðherra kallaði lághangandi ávexti en ég kýs að kalla ber í byggð, þ.e. aðgerðir sem eru einfaldar til að gera ferli skilvirkari án þess að það sé verið að slá af gæðum. Ég ætla að undirstrika það, án þess að það sé verið að slá af gæðum, að þegar við erum að breyta ferlum verðum við auðvitað að passa upp á umhverfið okkar, náttúruna; að við séum ekki að gera ferlið skilvirkara á kostnað hennar heldur að vandað sé til allra framkvæmda.

Mig langar aðeins að segja frá því að mér finnst vera vel að við séum að fara yfir þetta frumvarp, sem er sambland margra þátta, en mig langar líka að varpa upp þeirri spurningu hvort við séum, nú þegar ríkisstjórnin segist vera að forgangsraða og vinna meira og hraðar, raunverulega að ná utan um þau málefni í orkumálum sem hvíla á þjóðinni? Mig langar til að segja frá því að ég er nýkomin frá Norðurlandi þar sem ég fundaði með ýmsum aðilum um orkumál. Hvað er það sem hvílir á fólki? Það er hækkandi flutningskostnaður, hækkandi dreifikostnaður, þ.e. það sama og veldur því að iðnaður í landinu er nú síður samkeppnishæfur. Ég myndi vilja að við ræddum þau mál hér því þetta eru risastór mál fyrir landsbyggðina og iðnaðinn í landinu. Ég fagna því að það eigi að gera einhverjar umbætur hér en ég myndi vilja að forgangsröðunin væri sú að slíkt frumvarp væri það sem við ræddum hér í dag.

Einnig vil ég segja að ég varð glöð að sjá aukna fjárfestingu í jarðhita. Það er vel að við séum að fara í fjárfestingarátak. Mig langar hins vegar að hvetja hæstv. ráðherra til dáða í því að setja sérstaka áherslu á að gera meira hraðar þegar kemur að köldum svæðum sem hafa á marga vegu orðið eftir í þróun lífsgæða sé horft til sögunnar hingað til. Það er mikilvægt að fjárfesta í þessum svæðum umfram aðra staði, þó svo að það sé alveg rétt að hitaveitur víða um land séu komnar á tíma og að við þurfum heilt yfir að fjárfesta í jarðhitanum. Það er vel sem kemur fram í þessu frumvarpi að við sjáum að ákveðnar breytingar og einfaldanir séu í farvatninu þegar kemur að jarðhitanum, því að það er svið sem við þurfum að sinna betur.

Ég vil líka segja að ég vonast til þess að sem allra fyrst muni ráðherra efna það loforð sem hann talaði um í sínu fyrsta viðtali eftir að hann varð ráðherra, að ætla að setja lög sem tryggja orkuöryggi almennings. Ég fjallaði um það í störfunum um daginn að með því að tryggja orkuöryggi almennings á meðan við horfum upp á ákveðna tvískiptingu markaðarins, eins og hefur verið til staðar hingað til, þá verðum við líka að passa upp á að umgjörð fyrir langtímasamninga iðnaðar sé enn mikilvægur hluti af okkar raforkukerfi. Ég held að það sé risastór spurning. Þegar við horfum á þróun orkumarkaðslöggjafar verðum við að innleiða hana með þeim hætti að við tryggjum áfram samkeppnishæfni iðnaðar. Þetta eru mál sem skipta verulega miklu máli og ég óskaði þess að við fjölluðum meira um hér á þinginu.

Ég vil líka, af því að hér hefur verið komið inn á vatnatilskipun Evrópusambandsins, segja eftirfarandi: Innleiðing vatnatilskipunar Evrópusambandsins er frábært dæmi um innleiðingu sem við sjáum að þingheimur áttaði sig ekki á hverjar afleiðingarnar yrðu af. Enginn þingmaður leit svo á að afleiðingarnar yrðu þær sem birtast t.d. í niðurstöðunni um Sigöldu í dag. Þess vegna held ég að það sé gríðarlega mikilvægt, þegar við erum að innleiða eins og í þessu frumvarpi, að við áttum okkur á því hverjar verða raunverulegar afleiðingar og hvenær við þurfum að gera undantekningar eða reyna að tryggja það að innleiðingin sé ekki eitthvað sem flækir hlutina heldur einfaldar þá eða gerir þá betri.

Virðulegi forseti. Ég hvet hæstv. ráðherra áfram í því að ná árangri með breytingum sem snúa að einföldun framkvæmda. Munum þó stóru málin, flutnings- og dreifikostnað, fjárfestingu í jarðhita á köldum svæðum og fleiri slík mál. Ég gæti nefnt þróun vindorkuumgjarðar á hafi sem ég tel að þurfi að bæta verulega úr. Allt eru þetta efni sem við ættum að horfa meira á. Ég kalla eftir því að við sýnum meiri metnað í slíkum málum á þessum þingvetri.